Körfubolti

Snýr Kerr aftur á hliðarlínuna í nótt?

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Kerr náði frábærum árangri strax á fyrsta ári sínu í þjálfun.
Kerr náði frábærum árangri strax á fyrsta ári sínu í þjálfun. Vísir/getty
Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, snýr aftur á hliðarlínuna og mun stýra liðinu í leik kvöldsins gegn Denver Nuggets ef marka má miðla vestanhafs.

Kerr sem tók við liði Golden State Warriors fyrir síðasta tímabil stýrði liðinu til sigurs í úrslitum NBA-deildarinnar á sínu fyrsta tímabili í þjálfun en hann tók sér frí í haust til þess að ná sér eftir aðgerð.

Golden State hefur náð sögulegum árangri þrátt fyrir það í upphafi tímabilsins en liðið hefur unnið 30 af fyrstu 32 leikjum tímabilsins með Luke Walton sem þjálfara.

Kerr ferðaðist með liðinu í leiki gegn Dallas Mavericks og Houston Rockets á dögunum og ræddi við leikmennina í hálfleik leik liðsins gegn Sacramento Kings á dögunum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×