Handbolti

Fimm mörk frá Sigurbergi í sigri toppliðsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sigurbergur Sveinsson skoraði fimm mörk.
Sigurbergur Sveinsson skoraði fimm mörk. vísir/vilhelm
Íslendingaliðið Tvis Holstebro, sem er á toppnum í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, vann stórsigur á botnliði Skive í kvöld, 32-22.

Sigurbergur Sveinsson fór mikinn fyrir toppliðið og skoraði fimm mörk úr sjö skotum, en Egill Magnússon sem er kominn aftur af stað eftir meiðsli skoraði eitt mark.

Tvis Holstebro var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16-13, og jók svo forskotið jafnt og þétt í þeim síðari.

Sigurbergur, Egill og félagar þeirra eru með 30 stig á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum á undan Bjerringbo-Silkeborg og fjórum stigum á undan Skjern sen á leik til góða.

Holstebro-liðið hefur verið á miklum skriði undanfarnar vikur og mánuði en það er búið að vinna tíu af síðustu ellefu leikjum sínum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×