Körfubolti

Curry jafnaði met og bætti annað í mögnuðum sigri | Öll úrslit kvöldsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ótrúlegur.
Ótrúlegur. Vísir/Getty
Stephen Curry jafnaði met í NBA-deildinni í nótt þegar hann hitti úr 12 þriggja stiga skotum í sama leik í 121-118 sigri Golden State Warriors gegn Oklahoma City Thunder.

Síðasta þriggja stiga karfa Curry kom þegar 0,6 sekúnda var eftir í framlengingunni en hann hefur nú hitt úr þriggja stiga skoti í 129 leikjum í röð í NBA-deildinni sem er nýtt met.

Kevin Durant og Russell Westbrook gerðu hvað sem þeir gátu til þess að halda Oklahoma inn í leiknum. Þurfti að grípa til framlengingar til að útkljá leikinn en í framlengunni náðu Warriors að stela sigrinum með sigurkörfu Curry sem var nær miðjunni en þriggja stiga línunni.

Þetta var 53. sigur Warriors í vetur sem halda áfram að gera atlögu að meti Chicago Bulls-liðsins sem vann 72 leiki tímabilið 1995-1996 en sigurkörfu Curry má sjá hér fyrir neðan.

Bulls tapaði þrátt fyrir stórleik Gasol.Vísir/Getty
Pau Gasol lauk leik með þrefalda tvennu hjá Chicago Bulls en hann gat ekki komið í veg fyrir tap Chicago Bulls sem sakna nokkurra lykilmanna gegn Portland Trailblazers í nótt.

Damian Lillard, leikstjórnandi Portland, var sjóðheitur í kvöld og lauk leiknum með 31 stig en þetta var sextándi sigur Portland í síðustu tuttugu leikjum. Gasol lauk leiknum með 22 stig, 16 fráköst og 14 stoðsendingar.

San Antonio Spurs vann í nótt 50. leik sinn í vetur gegn Houston Rockets á útivelli í kvöld 104-94 en með því varð San Antonio Spurs-liðið sjöunda lið sögunnar sem vinnur 50 af fyrstu 60 leikjum tímabilsins.

Leikmenn Spurs tóku nítján stiga forskot inn í fjórða leikhlutann og gat þjálfari liðsins leyft sér að hvíla leikmenn á lokasprettinum.

Þá vann Phoenix Suns loksins körfuboltaleik eftir þrettán leikja taphrinu en liðið vann fimm stiga sigur á Memphis Grizzlies á heimavelli en þetta var fyrsti sigur liðsins í febrúar.

Úrslit kvöldsins:

Boston Celtics 101-89 Miami Heat

New Orleans Pelicans 110-112 Minnesota Timberwolves

Chicago Bulls 95-103 Portland Trailblazers

Houston Rockets 94-104 San Antonio Spurs

Milwaukee Bucks 91-102 Detroit Pistons

Oklahoma City Thunder 118-121 Golden State Warriors

Phoenix Suns 111-106 Memphis Grizzlies

Utah Jazz 96-98 Brooklyn Nets



Bestu tilþrif gærkvöldsins: Sigurkarfan hjá Curry: Þreföld tvenna hjá Pau Gasol:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×