Aðdáendur Trump aka pallbílum en Hillary Clinton Prius Finnur Thorlacius skrifar 25. febrúar 2016 09:23 Aðdáendur Donald Trump eru gjarnan á pallbílum og stórum jeppum.
Í góðlátlegu gríni gerði CarTalk bílavefurinn könnun meðal 10.000 Bandaríkjamanna um hverskonar bílum kjósendur í komandi forsetakosningum aka með tilliti til hvern frambjóðenda þeir eru líklegir til að kjósa. Þar kemur meðal annars í ljós að margir aðdáendur Donald Trump aka pallbílum og jeppum frá Ford, Chevrolet og Dodge en aðdáendur Hillary Clinton aka margir hverjir Toyota Prius tvinnbílnum. Aðdáendur Bernie Sanders aka Honda, Subaru og Volvo bílum og auk Prius bíla aka aðdáendur Hillary Clinton gjarnan Toyota, Lexus og Acura bílum. Könnunin leiðir einnig í ljós að almennt aka stuðningsmenn Repúblikana pallbílum og stórum jeppum, en það á semsagt við aðdáendur frambjóðendanna Trump, Cruz og Rubio. Eigendur Toyota Camry er líklegastir til að kjósa Demókrata. Eigendur Toyota Prius bíla eru 40% líklegri til að kjósa Hillary Clinton á meðal Demókrata, en eru 126% líklegri til að kjósa Ted Cruze á meðal Repúblikana. Stuðningsmenn Ben Carson hafa tilhneigingu til að aka sparneytnum bílum, en það á einnig við kjósendur Hillary Clinton og Bernie Sanders. Eigendur Tesla bíla eru líklegastir til að kjósa Bernie Sanders. Eigendur ódýrustu bílanna er líklegastir til að kjósa Ted Cruz, Bernie Sanders og Hillary Clinton en eigendur dýrustu bílanna er líklegastir til að kjósa Fiorina, Kasich og Stein. Eigendur rafmagnsbíla almennt eru líklegri til að kjósa Demókrata en Repúblíkana og mjög fáir þeirra munu kjósa Ted Cruz.
Donald Trump Mest lesið Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent