Körfubolti

Varejao á leið til Warriors

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Varejao í leik með Cleveland.
Varejao í leik með Cleveland. vísir/getty
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því dag að Anderson Varejao sé á leið til NBA-meistara Golden State Warriors.

Hinn 33 ára Varejao hafði spilað öll sín 12 ár í NBA-deildinni með Cleveland. Félagið losaði sig við hann og á endanum gat hann valið sér félag.

Mikill áhugi var á honum. Meðal annars frá Oklahoma, San Antonio og Dallas. Hann valdi þó að ganga í raðir Warriors. Skiljanlega.

Warriors hefur leyst Jason Thompson undan samningi til þess að koma Varejao að hjá sér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×