Handbolti

Öruggt hjá Barcelona í bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur var rólegur í kvöld.
Guðjón Valur var rólegur í kvöld. vísir/epa
Barcelona er komið með annan fótinn í undanúrslit spænsku bikarkeppninnar eftir öruggan sigur, 27-34, á Granollers í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum en seinni leikurinn fer fram á laugardag.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði aðeins eitt mark úr einu skoti í kvöld. Kiril Lazarov var markahæstur með átta mörk í ellefu skotum.

Danjel Saric átti rosalegan leik í marki Barcelona og varði 25 skot í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×