Handbolti

Veszprém gerði jafntefli við Vardar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron fagnar í leik með Veszprém.
Aron fagnar í leik með Veszprém. vísir/getty
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Veszprém í kvöld er liðið gerði jafntefli við Vardar í SEHA-deildinni.

Leikur liðanna var stórskemmtilegur og jafn allan tímann. Vardar leiddi í hálfleik en lokatölur voru 30-30.

Aron skoraði mörkin fjögur úr sjö skotum. Momir Ilic var markahæstur í liði Veszprém með tíu mörk.

Veszprem er með þriggja stiga forskot á Vardar í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×