Handbolti

Naumur sigur Löwen í Króatíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Uwe var markahæstur á vellinum í kvöld.
Uwe var markahæstur á vellinum í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen er með eins marks forskot fyrir síðari leikinn gegn HC Prvo Zagreb í 12-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta, en lokatölur 24-23.

Löwen lenti í bullandi vandræðum með skemmtilegt lið Zagreb í leiknum í dag, en þrátt fyrir að vera án nokkura leikmanna gaf Zagreb Ljónunum hörkuleik.

Heimamenn í Zagreb voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12-10, en í síðari hálfleik reyndust gestirnir frá Þýskaland sterkari og unnu að lokum eins marks sigur, 24-23.

Uwe Gensheimer var markahæstur hjá Löwen með sjö mörk, en næstur kom Mads Mensah með sex mörk. Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson komust ekki á blað.

Hjá Zagreb voru þeir Luka Sebetic, Zlatko Horvat og Domagoj Pavlovic allir með fimm mörk, en liðin mætast aftur í vikunni og þá skýrist hvort liðið fer í átta liða úrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×