Handbolti

Evrópumeistararnir niðurlægðu Asíumeistarana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Patrick Grötzki skorar eitt af mörkum sínum í kvöld.
Patrick Grötzki skorar eitt af mörkum sínum í kvöld. vísir/getty
Evrópumeistarar Þýskalands léku í kvöld vináttulandsleik gegn Katar fyrir framan troðfullt hús af áhorfendum í Leipzig.

Drengir Dags Sigurðssonar sýndu i kvöld á sér sömu sparihliðarnar og þeir gerðu á EM í Póllandi í janúar.

Þeir hreinlega völtuðu yfir Asíumeistarana og unnu stórsigur, 32-17. Sigurinn hefði vel getað orðið stærri enda léku Þjóðverjar við hvurn sinn fingur.

Uwe Gensheimer, Johannes Sellin, Patrick Grötzki og Simon Ernst skoruðu allir fjögur mörk fyrir Þjóðverja í kvöld.

Andreas Wolff hélt uppteknum hætti frá því á EM. Varði eins og berskerkur. Þar af þrjú víti bara í fyrri hálfleik. Hann endaði með um 20 skot.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn og gerðu það vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×