Bíó og sjónvarp

Spiderman mætir til leiks í Captain America

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Spiderman bregður á leik með skjöld Captain America.
Spiderman bregður á leik með skjöld Captain America. Mynd/skjáskot
Það stefnir í líf og fjör í þriðju myndinni um Captain America. Líkt og fyrr er þéttsetinn bekkurinn af ofurhetjum í myndinni sem ber heitið Captain America: Civil War. Búið er að gefa út nýja stiklu fyrir myndinni og þar má sjá engan annan en Spiderman.

Það er leikarinn Tom Holland sem fer með hlutverk Spiderman í myndinni. Hlutverki hans er ætlað að byggja undir nýja seríu af Spiderman-myndum sem í bígerð eru og eiga að tengjast Marvel-heiminum sem myndirnar um Captain America eiga að gerast í.

Sem áður mun fjöldi ofurhetja bregða fyrir en að þessu sinni eru svokallaðar góðar ofurhetjur að berjast við aðrar ofurhetjur.

Fylkingarnar tvær eru leiddar af Steve Rodgers, eða Captein America annarsvegar og Tony Stark, eða Iron Man hins vegar. Myndin verður frumsýnd í sumar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×