Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Fjölmenni var á frumsýningu rúmensk-norsku kvikmyndarinnar Fjarðar í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið. Kvikmyndagerðarfólk, blaðamenn og menningarsprautur horfðu þar á þetta æsispennandi fjölskyldudrama sem vann Gullpálmann á Cannes fyrr í ár. Bíó og sjónvarp 23.10.2026 16:57
Ríkisútvarpið og hlutverk þess Ragga Jóns skrifaði á facebook: "Hlemmur er ein af þessum heimildamyndum sem hefur lifað í mér öll þessi ár. Ég veit eiginlega ekki hversu oft ég hef séð hana, það hleypur á tugi skipta. Og hún hreyfir alltaf jafn mikið við manni. Skoðun 23.10.2026 08:33
Boltamömmur í miðjumoði Boltamömmur eru fagmannlega gerðir gamanþættir um ofstopafulla hegðun foreldra á fótboltaleikjum, bældar miðaldra konur og leyndarmál í úthverfunum. Þættirnir eru skemmtilega vandræðalegir með sterkum frammistöðum og nokkrum grínsprettum. Hvorki dramað né spennan eru tekin alla leið og enda þeir þess vegna í hálfgerðu miðjumoði. Gagnrýni 23.10.2026 07:01
Glee snýr aftur Tónlistardramaþættirnir Glee snúa aftur á skjáinn og verða endurræstir með nýrri seríu á streymisveitunum Disney+ og Hulu. Litlar upplýsingar liggja fyrir um seríuna sem mun þó innihalda bæði ný andlit og einhverja leikara úr upprunalegu seríunni. Bíó og sjónvarp 21. október 2026 15:54
Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Mér finnst ógeðslega erfitt að finna titla á hluti, sérstaklega þegar maður er að gera músík sem er ekki með neinum orðum. Þannig að ég byrjaði bara að leita; grúska í bókum, fletta í gegnum eitthvað og reyna bara að finna einhver orð eða setningar. Þegar ég var alveg að vera búinn með plötuna og mig vantaði ennþá titil þá fór ég bara að skrolla á Vísi og þar var þessi fyrirsögn.“ Lífið 18. október 2026 12:02
Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Tvenn ný þekkt nöfn bætast nú við langan lista þeirra sem farið hafa með aðalhlutverk í bandarísku spennuþáttunum True Detective en þeir Nicolas Cage og Antonio Banderas eru staðfestir að leika í næstu þáttaröð. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og var síðasta þáttaröð True Detective: Night Country tekin að mestu leyti upp á Dalvík. Bíó og sjónvarp 17. október 2026 09:45
Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Tónlistarmaðurinn Frumburður frumsýndi tónlistarmyndband við lagið „Ég veit um stað“ með Skoffíni í sjoppunni Vikivaka í gær. Myndbandið var sýnt á túbusjónvarpi og verður áfram á samfelldri lúppu í sjónvarpinu alla helgina. Lífið 16. október 2026 17:03
Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu. Bíó og sjónvarp 16. október 2026 13:12
Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Leikstjórinn Steven Soderbergh mun klára kvikmyndina The Batman: Part II vegna fjölskyldumála leikstjórans Matt Reeves. Fyrri myndin kom út vorið 2022 og átti framhaldið að koma út þremur árum síðar en útgáfunni hefur verið seinkað í þrígang til ársbyrjunar 2028. Ekki hefur komið fram hvers vegna Reeves steig til hliðar en um alvarlegt mál virðist vera að ræða. Bíó og sjónvarp 16. október 2026 11:24
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Grínistinn Kjartan Logi var að gefa út lagið „Stöðumælavörð“ og með því tónlistarmyndband. Kjartan hefur unnið sem stöðumælavörður samhliða gríninu síðustu ár en missti starfið um áramótin. Hann er þó ekki að hefna sín á fyrrverandi yfirmönnum og segir starf stöðumælavarðarins vanþakklátt. Tónlist 16. október 2026 07:02
Stelpurnar snúa aftur Gamanþættirnir Girls eftir Lenu Dunham munu snúa aftur á HBO og hefjast tökur á næsta ári, tíu árum eftir að sjötta serían kom út. Nýja þáttaröðin verður fimm þættir og snúa aðalstelpurnar fjórar allar aftur þó óvíst sé með Hollywood-stjörnuna Adam Driver. Bíó og sjónvarp 14. október 2026 10:21
Horfa fram á sögulegt tap Diggers Stórmyndin Digger stefnir í að skrá sig á spjöld sögunnar vegna dræmrar aðsóknar. Heildartap myndarinnar gæti numið allt að 29 milljörðum króna þegar kostnaður markaðsherferðar og hlutur bíóhúsa af tekjum myndarinnar er tekinn inn í jöfnuna. Fari svo gæti hún skipað sér í flokk með stærstu floppum kvikmyndasögunnar. Bíó og sjónvarp 13. október 2026 15:23
Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Fleiri Pabbahelgar er ný íslensk gamandramaþáttaröð í sex hlutum sem verður frumsýnd á RÚV sunnudaginn 18. október. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim. Bíó og sjónvarp 13. október 2026 12:00
Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Á næstu vikum fer í loftið ný íslensk streymisveita sem ber heitið Heima og er samstarfsverkefni Sýnar og Sagafilm. Einungis íslenskt efni verður í boði. Neytendur 9. október 2026 20:46
Elma seld til útlanda Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi. Bíó og sjónvarp 9. október 2026 10:55
Ástarbréf til íslenskra költmynda Lagið „Fokkamérupp“ með Alösku og Frumburði kom út á miðnætti og tónlistarmyndband við lagið er frumsýnt á Vísi í dag. Tónlistarmyndbandið er innblásið af íslenskum kvikmyndum á borð við Blossa, Íslenska drauminn og Astrópíu sem komu út í kringum aldamót og var það tekið upp á filmu til að fanga nostalgíutilfinninguna. Tónlist 9. október 2026 10:27
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct. Bíó og sjónvarp 7. október 2026 16:12
Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta. Bíó og sjónvarp 5. október 2026 14:33
La Gradiva hlaut Gullna lundann La Gradiva eftir Marine Atlan hlaut Gullna lundann, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni RIFF, en hann var afhentur í Háskólabíó í kvöld. Alls voru sex verðlaun veitt. Bíó og sjónvarp 3. október 2026 18:47
Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Hlemmur, kvikmynd Ólafs Sveinssonar, hefur öðlast svokallaðan „költstatus“. Myndin er rúmlega tuttugu ára gömul og um hana leikur ljómi. Þar er fjallað um menn götunnar, fólk sem á við drykkjuvanda og/eða geðrænan vanda að stríða. Ólafur er nú með þrjár myndir aðrar í smíðum en hann segir Ríkissjónvarpið vera Þránd í Götu – og tæplega uppfylla lagalegar skyldur sínar. Lífið 3. október 2026 07:02
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Mosfellingarnir Steindi Jr. og Dóri DNA snúa aftur með aðra seríu af ferðaþáttunum 1 stjörnu á Sýn+ í nóvember. Þar heimsækja félagarnir sex nýjar borgir og kynnast því hallærislegasta, skrýtnasta og slappasta sem þær hafa upp á að bjóða. Bíó og sjónvarp 2. október 2026 16:34
Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikarinn Michael Douglas hefur loksins gengist við því að hafa átt í leynilegu ástarsambandi með mótleikkonu sinni, Kathleen Turner, þegar þau tóku upp stórmyndina Romancing The Stone í Mexíkó árið 1984. Þau hafa alla tíð neitað fyrir sambandið sem Douglas ljóstrar nú upp um í nýrri ævisögu sinni. Bíó og sjónvarp 2. október 2026 16:04
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Skoski stórleikarinn Alan Cumming verður meðal leikara í væntanlegri ofurhetjumynd Avengers: Doomsday. Frásagnir hins 61 árs gamla leikara af tökustað hafa hinsvegar vakið athygli þar sem hann sagðist skilja hvorki upp né niður í söguþræði myndarinnar. Þá lék hann með áhættuleikara Florence Pugh en ekki leikkonunni sjálfri. Bíó og sjónvarp 2. október 2026 13:00
Bransafólk í blússandi fíling Kvikmyndahátíðin RIFF opnaði með pomp og prakt um helgina og fjöldi fólks kom saman í Háskólabíói við hátíðlega athöfn. Ráðherrar, bransafólk, leikarar og plötusnúðar skemmtu sér fram eftir kvöldi. Bíó og sjónvarp 30. september 2026 13:11