Handbolti

Van der Vaart á kvennahandboltaleik í Esbjerg

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hin 23 ára gamla Polman er ein af bestu handboltakonum Hollands.
Hin 23 ára gamla Polman er ein af bestu handboltakonum Hollands. vísir/getty
Áhorfendur á kvennaleik Esbjerg og Ringköbing ráku upp stór augu þegar knattspyrnustjarnan Rafael van der Vaart var mættur í stúkuna með bjórglas.

Það átti sínar eðlilegu skýringar. Kærastan hans, Estavana Polman, er leikmaður Esbjerg og Van der Vaart var mættur til þess að styðja hana.

Van der Vaart er fyrrum leikmaður Real Madrid og Tottenham. Hann spilar nú með Real Betis á Spáni.

Tíu ára aldursmunur er á parinu sem lét vel að hvort öðru eftir leik eins og sjá má hér.

Van der Vaart sagðist kunna vel við sig í Esbjerg og skemmdi eflaust ekki fyrir að Polman og félagar unnu leikinn með fimm marka mun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×