Körfubolti

Strákarnir létu ekki plata sig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Nei, takk. Þið getið fengið einhvern annan til að lesa þetta,“ sagði KR-ingurinn Pavel Ermolinskij þegar hann var beðinn um að lesa neikvæðan texta um kvennakörfubolta.

UN Women Iceland hóaði í nokkra af bestu körfuboltamönnum landsins til þess að taka þátt í auglýsingu fyrir Dominos-deildina í körfubolta.

Þeir vissu ekki að verið var að taka upp allt öðruvísi auglýsingu en þeir héldu. Reynt var að láta þá segja niðrandi texta um kvennakörfubolta en þeir sögðu nei, takk.

Strákarnir tóku ekki í mál að tala niðrandi um körfuboltastelpurnar og var frábært að sjá viðbrögð þeirra.

Auglýsinguna má sjá hér að ofan.

Auglýsingin er hluti af He For She átakinu en nánar má lesa um það átak á heforshe.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×