Mexíkósk skinkuhorn að hætti Evu Laufeyjar 7. apríl 2016 10:44 visir.is/evalaufey
Mexíkósk skinkuhorn Skinkuhorn með mexíkóskum blæ ca. 40 meðalstórn skinkuhorn900 g. Kornax hveiti60 g. Sykur½ tsk. Salt100 g. Smjör½ l mjólk1 pakki þurrgerOfan á:1 eggSmá mjólkt.d. rifinn ostur eða kornAðferð:Hitið mjólkina í potti við vægan hita (mjólkin á að vera volg). Bætið þurrgerinu út í mjólkina og látið standa í 4 – 5 mínútur. Bræðið smjörið við vægan hita. Blandið öllu saman og hnoðið deigið vel saman eða þar til deigið er slétt og samfellt. Leyfið deiginu að lyfta sér í 40 – 50 mínútur. Þá hnoðið þið deigið einu sinni enn og leyfið því að lyfta sér í 30 mínútur til viðbótar.Á meðan deigið er að lyfta sér þá er gott að undirbúa fyllinguna. Þið getið auðvitað fyllt deigið með allskyns góðgæti en í dag erum við að búa til skinkuhorn og þá er skinka auðvitað aðalatriðið.Hér er innihaldið í þessa einföldu og stórgóðu fyllingu.1 pakki skinka ca. 250 g1 askja Tex Mex smurostur1 askja Paprikuostur½ rauð paprikaRifinn ostur, magn eftir smekkAðferð:Skerið skinkuna í litla bita og blandið henni saman við smurostinn. Þegar deigið er tilbúið þá er því skipt niður í fimm einingar. (um 300 – 330 g hver eining)Fletjið út hverja einingu í hring og skerið hverja einingu í átta þríhyrninga (mér finnst gott að nota pízzahníf). Setjið fyllingu í hvern þríhyrning og dreifið smá osti yfir. Rúllið deiginu frá breiðari endanum þegar þið lokið hornunum. Pískið eitt egg og smá mjólk saman og penslið yfir hornin. Gott er að sáldra rifnum osti eða kornum yfir hornin áður en þau fara inn í ofn.Bakið hornin við 200°C í 10 – 12 mínútur. (Fylgist vel með hornunum því ofnar eru auðvitað misjafnir)Missið ekki af Matargleði Evu í kvöld klukkan 19:15 á Stöð 2.
Brauð Eva Laufey Uppskriftir Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið