Málið er að valda Íslandi stórfelldu tjóni Jakob Bjarnar skrifar 5. apríl 2016 11:24 Meðan Hjörtur telur blasa við að fréttir af aflandsreikningi Sigmundar Davíðs hafi þegar valdið Íslandi stórfelldum skaða, telja Sigmundur Davíð og Jón hjá Íslandsstofu ímyndina ekki hafa skaðast. Og Gunnar Bragi skammar heimspressuna.
Hjörtur Smárason, sérfræðingur í alþjóðlegum viðskiptum, segir engan vafa á því leika að fréttir af aflandsreikningum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, í heimspressunni, hafi þegar valdið Íslandi stórkostlegum skaða. Hann gerði bæði sjálfum sér og þjóðinni greiða með því að víkja nú þegar. Þeim mun lengur sem hann situr, þeim mun meiri verður skaðinn. Þetta blasir við. Sigmundur Davíð hefur hins vegar engar verulegar áhyggjur af þessu. Hann var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann hefur verið á forsíðum erlendra blaða með einræðisherrum og alræmdum fjárglæframönnum en hann telur það ekkert sérstakt áhyggjuefni, þá sé litið til ímyndar Íslands. „Nei, ég hef það nú ekki. Ég tel aðalatriðið í þessu að koma réttum upplýsingum á framfæri. Það er gott til þess að vita að margir þessara fjölmiðla, að minnsta kosti þessir sem teljast virðulegri, taka fram hvers eðlis málið er,“ segir Sigmundur: „Auðvitað slá menn helst upp myndum af þeim sem eru í tilteknum stöðum eða eru þekktir, frægir íþróttamenn og fólk úr ýmsum störfum sem eru til þess fallin að gera þau að myndefni.“ Í sjónvarpsfréttum RÚV í gær kom fram að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hafi verið spurður um það, þar sem hann er staddur á Indlandi, um stöðu Sigmundar Davíðs, og var þá þungt í utanríkisráðherra hljóðið. Gunnar Bragi hundskammar alþjóðlega fjölmiðla. „Það er mjög undarlegt að klína andliti hans á veggspjald ásamt einhverjum glæpamönnum úti í heimi,“ sagði utanríkisráherra Íslands. „Það er ósanngjarnt, óháttvíst og ætti ekki að sjást. Forsætisráðherra minn hefur ekkert rangt gert.“ Og í Morgunútvarpi Rásar 2 var Jón Ásbergsson hjá Íslandsstofu í viðtali og hann telur ekki líklegt að það verði langtíma skaði af þessu máli. Bananalýðveldi og spillingarbæli? „Neineineinei, að svo miklu leyti sem Ísland hefur einhverja mynd erlendis. Einhverja ímynd, þá tengist hún þessum náttúrlegum fyrirbærum. Og það eru spilltir og vandræðalegir stjórnamálamenn víðar en á Íslandi. Þetta er bara hluti af því sem er að gerast og ég held að við höfum ekki tapað neinni sérstakri ímynd,“ segir Jón og telur að mikið þurfi að koma til.Mýtan um Ísland viðkvæmEn, það verður ekki hjá því litið að Ísland hefur verið í brennidepli heimspressunar. Vísir hefur gert skilmerkilega grein fyrir því og alltaf bætist í sarpinn. Ekki þarf annað en líta til forsíðu Financial Times nú í morgun.Financial Times er einn áhrifamesti fjölmiðill heims sá sem fjallar um fjármál og viðskipti. Þetta blasti við lesendum í morgun, á forsíðu.Hjörtur Smárason telur þetta ekki eins léttvægt, eða lítið mál og þessir þrír sem áður eru nefndir. Hann starfar í Kaupmannahöfn við markaðssetningu borga, landsvæða og landa. Hann segir engan vafa leika á að fréttirnar um eign forsætisráðherrahjónanna á aflandsfélagi hafi þegar valdið íslensku viðskiptalífi stórkostlegu tjóni, en hann var í viðtali í útvarpsþættinum Speglinum í gær og er mjög afdráttarlaus.Mikilvægt að endurvekja traust Hjörtur rekur að undanfarið hafi verið byggt á mýtu, sem reyndar sé ekki rétt, að eftir hrun hafi ríkisstjórn verið komið frá, bankamenn fangelsaðir og ný stjórnarskrá samin. Það hafi hins vegar ekki komið fram að gömlu stjórnarflokkarnir, reyndar með nýju fólki, hafi verið kosnir til valda og nýrri stjórnarskrá var hent í ruslið. „Maður hefði kannski vonast til þess að með nýju fólki um borð þá séu kannski komnir nýir starfhættir. Það var það sem Sigmundur sjálfur talaði um í viðtali við sænska sjónvarpið; hvað það er mikilvægt að endurvekja þetta traust á stofnununum innan samfélagsins. Það á sérstaklega við inná við. En það á líka við útá við, úti í heimi, þegar við erum að tala um viðskiptalífið. Og það er mjög mikilvægt að við getum endurvakið traustið á viðskiptalífi Íslands. Þannig að íslensk fyrirtæki geti aftur fengið erlent fjármagn inní fyrirtækin, þau geti náð sölusamningnum og þetta skiptir verulegu máli íslenskt efnahagslíf.“Í flokki með spilltum einræðisherrumOg, Hjörtur telur engan vafa leika á því að róðurinn verður miklu þyngri fyrir íslensk fyrirtæki eftir en áður. „Enginn vafi á því. Maður getur litið á það þannig að svona geti gerst einu sinni. Og þá er það kannski ekki eitthvað sem er til merkis um að svona séu Íslendingar almennt, en þegar svona gerist ítrekað, þó þetta sé kannski ekki jafngildi hrunsins, þá er verið að setja íslenska forsætisráðherrann í alþjóðlegum fjölmiðlum á sama stall og einræðisherra einhvers staðar úti í heimi sem þykja mjög spilltir. Og eru þannig að margir veigra sér við að fara í viðskipti við. Og það er mjög alvarlegur hlutur.“ Hjörtur telur að Sigmundur hljóti, ef hann líti á málið út frá þessu sjónarhorni, hversu miklum skaða hann er í raun að valda, að geta séð að hann væri að gera öllum greiða með að víkja: „bæði sjálfum sér og samfélaginu öllu; efnahagslífinu og trúnni á íslenskt efnahagslíf, með því að víkja. Það væri það eina rétta. Þegar maður hugsar um orðspor Íslands.“Siðlaus Landsbanki og enginn segir neittÞó enginn vafi leiki á um það, í huga Hjartar, að efnahagslegur skaði blasi við sé erfitt að meta umfang hans. Geti bara verið getgátur. Hann bendir á að fáar myntir séu þannig að þær séu ónothæfar utan landsteina. Og það sýni hina veiku efnahagslegu stöðu.Hjörtur segir blasa við að fréttir af aflandsreikningum Sigmundar Davíðs í heimspressunni hafi þegar valdið Íslandi stórfelldum skaða.„Og það sem gerist ítrekað, að við séum tengd við spillingu, ekki bara að tala um að forsætisráðherrann sé tengdur við einhver aflandsfélög heldur er Landsbankinn einn umsvifamestu bönkum veraldar þegar kemur að aflandsfélögum og skattsvikafyrirtækjum. Það er mjög alvarlegur hlutur. Hlutur sem undarlegt er að ekki sé í umræðunni á Íslandi. Hvar eru stjórnmálamenn sem líta á bankana?“Í flokki með Nígeríu Hjörtur furðar sig á þessu kæruleysi: „Hér í Danmörku, þar sem ég bý, eru stjórnmálamenn brjálaðir vegna þess að Nordea banki hefur verið umsvifamikill í þessu. Það er enginn í íslenskum stjórnmálum sem hefur gagnrýnt bankana fyrir þetta. Því fólk er farið að ganga út frá því að svona virki íslenskir bankar. Þeir eru siðlausir. Þetta þykir siðlaust í viðskiptalífi Evrópu. Og ef við ætlum reyna að byggja upp trúverðugleika fyrir okkar fyrirtæki í viðskiptum í Evrópu þá er það erfitt ef við beitum aðferðum sem þykja siðlausar í Evrópu. En okkur þykir það bara allt í lagi. Það hefur engar afleiðingar.“ Hjörtur setur upp dæmi, ímynda má sér að tveir menn koma til þín með frábært tilboð. Annar er frá Nígeríu og hinn frá Noregi. Hvernig viðbrögð fengju þeir að teknu tilliti til þess að Noregur hefur á sér gott orð en sá frá Nígeríu ætti erfiðara uppdráttar. Þó margir heiðarlegir Nígeríumenn finnist er Nígería þekkt fyrir svikamál. „Nú er Ísland komið í sömu stöðu.“
Panama-skjölin Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent Fleiri fréttir Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Sjá meira