Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Árni Sæberg skrifar 29. október 2026 16:21 Slysið varð á Siglufjarðarvegi við Hofsós. Vísir/Atli Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til fimm mánaða skilorðsbundins fangelsis vegna umferðarslyss sem varð í grennd við Hofsós í apríl í fyrra, þegar hann var tæplega átján ára. Einn þriggja farþega í bílnum slasaðist mjög alvarlega og slysið mun marka allt hans líf, að sögn læknis. Slysið varð eftir að ungi maðurinn ók á um 190 kílómetra hraða á handónýtum bíl.
Þetta segir í dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra, sem kveðinn var upp í dag. Þar segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 11. apríl 2025, ekið bifreið um Siglufjarðarveg, Skagafirði, án þess að gæta nægilegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður, með allt að 193 kílómetra hraða á klukkustund, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 kílómetrar á klukkustund, þannig að hann hafði ekki fullt vald á bifreiðinni og hafi þannig af gáska stognað lífi og heilsu annarra í augljósan háska. Valt fleiri veltur Þá hafi hann ekki gætt þess að ökutækið væri í góðu ástandi, en ástand hjólbarða hafi verið slæmt, þeir afar gamlir og gúmmíið byrjað að springa og morkna, ástand hemla afar lélegt, hemladiskar mjög ryðgaðir, stimpill í hemladælu vinstra megin framanvert fastur og hemlaklossar vinstra megin aftanvert verulega ryðgaðir og stirðir í sætum og loks mikill styrkleikamissir vegna tæringar í burðarvirki og yfirbyggingu bifreiðarinnar. Allt hafi þetta verið með þeim afleiðingum að ungi maðurinn missti stjórn á bifreiðinni sem við það hafi farið yfir á öfugan vegarhelming og út af veginum, þar sem hún fór þrjár til fjórar veltur, alls um 80 metra, allt þar til hún stöðvaðist um 19 metrum vestan við veginn. Lá í tæpan mánuð á gjörgæslu Afleiðingar þess hafi verið að farþegi í bifreiðinni hlaut brot í hálshryggjarlið og brjósthryggjarlið, auk mars á lungum, sinaskaða á vinstri hönd og blæðingu í bæði augu. Annar farþegi hafi hlotið brot á hryggjarútskoti á efsta liðbol, ótilfært brot í utanverðu efra kjálkabeini hægra megin, lungnamar beggja vegna, blóð í heilahólfum og dreifðan taugasímaheilaskaða í nánast öllum heilanum. Hann hafi legið tæpan mánuð á gjörgæslu, hlotið málstol og vinstri helftarlömun og ekki haldið höfði, auk þess sem hann hafi hlotið mar og sár á vinstri framhandlegg og mikið mar, bólgu og sár á höfði vinstra megin. Hefði ekki átt að vera í umferð Í dóminum segir að bifvélavirki hafi framkvæmt bíltæknirannsókn á bifreiðinni að beiðni lögreglu. Í skýrslu hans komi fram að í skoðun 8. júní 2021 hafi ökutækið fengið athugasemd varðandi styrkleikamissi. Staða ökumælis hafi þá verið 283.329 kílómetrar Skráningarnúmer hafi verið lögð inn 11. ágúst 2023 en tekin út aftur 12. febrúar 2025. Sama dag hafi orðið eigendaskipti og 17. sama mánaðar hafi bifreiðin fengið skoðun þar sem einu athugasemdirnar hafi varðað ljósker, lýsingu, númeraljósker og framrúðuþurrkur. Í þeirri skoðun hafi bifreiðin verið skráð ekin 284.184 kílómetra eða aðeins 855 km meira en þegar hún var skoðuð þremur árum, átta mánuðum og níu dögum áður. Ástandi bifreiðarinnar hafi verið allverulega ábótavant og setja hefði átt hana í akstursbann. Hinn 9. apríl 2025 hafi orðið eigendaskipti. Hjólbarðar ökutækisins séu afar gamlir, gúmmíið í þeim sé byrjað að springa og morkna og mynstur sé afar lélegt. Ástand hemla sé afar lélegt. Hemladiskar séu mjög ryðgaðir. Stimpill í hemladælu vinstra megin að framan sé fastur. Hemlaklossar vinstra megin að aftan séu verulega ryðgaðir og stirðir í sætum. Ytri stimpill í hemladælu sé fastur. Þá sé bifreiðin verulega tærð og beri þess ekki merki að gert hafi verið við hana samkvæmt athugasemdum í skoðun 8. júní 2021. Skoðun sem gerð hafi verið eftir bestu vitund bendi til verulegs ábyrgðarleysis að hálfu skoðunaraðila sem hafi skoðað bifreiðina 17. febrúar 2025 og fyrri eiganda bifreiðarinnar. Þrátt fyrir að ökutækið hafi fengið athugasemd um styrkleikamissi í skoðun 8. júní 2021 sé hvergi hægt að sjá að gert hafi verið við burðarvirki eða yfirbyggingu. Límband hafi verið notað til að líma yfir ryðgöt á yfirbyggingu og blikkbætur hafi verið kíttaðar og skrúfaðar með sjálfborandi skrúfum í farangursgeymslu bifreiðarinnar. „Ökutækið sé í heild sinni gatryðgað, þar með talið burðarvirki sem gegni lykilhlutverki þegar árekstur eigi sér stað. Ásamt greinilegum styrkleikamissi hafi bifreiðin verið í svo slæmu ásigkomulagi að hún hefði ekki átt að vera í umferð.“ Gríðarleg áhrif á farþegann og alla hans fjölskyldu Í dóminum segir einnig að í málinu liggi fyrir læknisvottorð vegna farþegans sem slasaðist mest í slysinu og krafðist bóta úr hendi bílstjórans. Í því komi fram að farþeginn hafi verið farþegi í aftursæti bifreiðarinnar þegar slysið varð, ekki í bílbelti og hafi kastast út úr bifreiðinni. Í vottorðinu sé því lýst að slysið hafi haft gríðarlega mikil áhrif á farþegann og alla fjölskyldu hans. Veruleiki hans sé breyttur. Erfitt sé að segja til um hvort ástand hans eigi eftir að breytast en ljóst sé að hann hafi orðið fyrir miklum skaða við þetta alvarlega slys sem muni marka allt hans líf. Fimm skilorðsbundnir mánuðir og 3,5 milljónir Í niðurstöðukafla dómsins segir að ungi maðurinn hafi játað háttsemi sína skýlaust en mótmælt átta milljóna króna miskabótakröfu farþegans sem of hárri. Með vísan til ungs aldurs mannsins, hreins sakarvottors hans og skýlausrar játningar honum til málsbóta en einnig alvarleika brots hans sé refsing hans hæfilega ákveðin fimm mánaða skilorðsbundin fangelsisvist. Þá segir að miskabætur til handa farþeganum séu hæfilega ákveðnar 3,5 milljónir króna, meðal annars með vísan til fjárhags unga mannsins. Þá greiði hann allan sakarkostnað málsins, alls tvær milljónir króna.
Skagafjörður Umferðaröryggi Samgönguslys Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira