Golf

Hitaði upp með Trump og vann sitt fyrsta mót

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Reynsluboltinn Jim Herman gerði sér lítið fyrir og fagnaði sigri á Opna Houston-golfmótinu um helgina. Það var hans fyrsti sigur á PGA-móti en þetta var 106. mótið hans á ferlinum.

Herman tryggði sér þar með þátttökurétt á Masters-mótinu sem hefst á fimmtudag en hann var tárvotur þegar sigurinn var í höfn eftir að hafa spilað á 68 höggum á lokahringnum.

Herman hitaði upp fyrir mótið með því að spila með bandaríska forsetaframbjóðandanum Donald Tromp en hann greindi frá því að Trump hafði á sínum tíma hjálpað honum að komast inn á PGA-mótaröðina.

„Hann hjálpaði mér fjárhagslega. Skrifaði fyrir mig ávísun og gaf mér mikið sjálfstraust,“ sagði Herman sem starfaði á boðsmóti Trump í New Jersey fyrir áratug síðan.

Þangað til í nótt hafði Herman aldrei komist nálægt því að vinna PGA-mót og aldrei tekið þátt í Masters-mótinu.

Henrik Stenson endaði í öðru sæti eftir að hafa misst langt pútt fyrir fugli á átjándu holu. Jordan Spieth var sjö höggum á eftir Herman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×