Körfubolti

Kobe hafnaði Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe og Gasol eru miklir vinir. Gasol er frá Barcelona og félagið vildi fá þá báða þangað.
Kobe og Gasol eru miklir vinir. Gasol er frá Barcelona og félagið vildi fá þá báða þangað. vísir/getty
Spænska stórliðið Barcelona reyndi að fá Kobe Bryant til félagsins síðasta sumar.

Félagið frétti af því að Kobe hefði sagt að það væri frábært að enda ferilinn með Pau Gasol og reyndi því að fá þá báða.

Kobe fékk tilboð frá félaginu en hafnaði því á þeim forsendum að hann efaðist um að geta haldið heilsu heilt tímabil í viðbót.

Kobe tilkynnti síðan í nóvember að hann ætlaði sér að hætta eftir tímabilið. Síðasti körfuboltaleikur hans verður þann 13. apríl næstkomandi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×