Körfubolti

Kobe skoraði 60 stig í síðasta leiknum sínum | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant kvaddi NBA-deildina í körfubolta með magnaðri frammistöðu í nótt en kappinn skoraði þá 60 stig í 101-96 sigri Los Angeles Lakers á Utah Jazz. Þetta var síðasti leikur Kobe á tuttugasta og síðasta tímabili hans í NBA.

Kobe Bryant þurfti vissulega að spila í 42 mínútur og taka 50 skot í leiknum en hann ætlaði sér að enda á alvöru Kobe frammistöðu og sigri eftir alla þessa tapleiki á tímabilinu. Hann hefur aldrei tekið fleiri skot í einum leik ekki einu sinni þegar hann skoraði 81 stig fyrir tíu árum.

Sigrarnir voru aðeins 17 hjá Lakers en Svarta mamban neitaði hreinlega að enda á tapi. Hann fór fyrir endurkomu Lakers sem lenti fimmtán stigum undir í leiknum.

Síðustu sekúndurnar voru líka magnaðar enda skoraði Kobe þrist þegar 59 sekúndur voru eftir og önnur þriggja stiga karfa hans 31 sekúndum fyrir leikslok kom Lakers yfir í 97-96. Hann náði síðan sextugasta stiginu með því nýta tvö víti fjórtán sekúndum fyrir leikslok.

Bryant endaði síðan á því að gefa stoðsendingu á Jordan Clarkson áður en hann yfirgaf völlinn í síðasta sinn 4,1 sekúndum fyrir leikslok. Allir í Staples Center höfðu staðið á fætur fyrir lokakaflann og það var vissulega Kobe-legt að skora átta stig á síðustu 55 sekúndum sínum í NBA hvað þá að ná 60 stigum í síðasta leiknum.

Þetta var í fyrsta sinn síðan 2009 sem Kobe nær að skora fimmtíu stig í leik og lokaleikurinn komst upp í fimmta sætið yfir stigahæstu leiki hans á ferlinum. Kobe sem er að verða 38 ára á árinu varð ennfremur elsti leikmaðurinn í sögu NBA til að skora yfir 50 stig í einum leik.

Wilt Chamberlain var áður sá elsti til að skora 60 stig í NBA og hann var meira en fimm árum yngri en Kobe sem var 37 ára og 234 daga í lokaleiknum sínum.

Kobe nýtti alls 22 af 50 skotum sínum í leiknum þar af 6 af 21 þriggja stiga skoti. Hann var einnig með 4 fráköst og 4 stoðsendingar.Kobe skoraði 48 stigum meira en næststigahæsti leikmaður Lakers-liðsins sem var Jordan Clarkson með 12 stig.

Það var boðið upp á mikla sýningu í nótt þegar Kobe Bryant sagði bless og má sjá myndbönd frá þessu sögulega kvöldi hér í fréttinni þar á meðal hvað nokkrar af mestu goðsögnum NBA-deildarinnar sögðu um hann í myndbandi sem var sýnt fyrir leikinn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×