Skoðun

Kosningakrafa stjórnar­and­stöðunnar

Árni Stefán Árnason skrifar

Undrun vekja hjá mér viðbrögð ¾ hluta stjórnarandstöðuflokkanna, Samfylkingar , Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar, hluta fimmflokksins á þingi, sem margoft hefur verið kallað eftir að víki með orðunum: fjórflokkinn burt.



Þessir flokkar æpa nú sigurvissir hátt eftir kosningum. Háttalag þeirra er, sem hafi þeir dottið í lukkupottinn eins og andstaðan er við núverandi ríkisstjórn í háværum mótmælum m.a. á Austurvelli. Eins og verið sé að kalla á eftir þeim til að taka við stjórn landsins. Þeir eigi sigur vísan í næstu alþingiskosningum. Fylgi allra þessara andstöðuflokka er engu að síður í sögulegu lágmarki. Ekki að ástæðulausu þegar horft er til baka.



Kjósendur bera ekkert meira traust til þessara flokka en áður, það sýna kannanir, traust þeirra er jafn rúið og ríkisstjórnarflokkanna, bara með öðrum hætti.



Ég vona, að Píratar, sá flokkur, sem sker sig úr heildinnni í fylgi skv. könnunum í fjölda missera, sker sig úr heildinni með grunngildum sínum, pólitískum siðferðisviðmiðum og öðrum góðum hugsjónum sigli nú áfram sína leið, sem fyrr og skoði gaumgæfilega hvort hann leyfi öðrum stjórnarandstöðuflokkum að hanga í pilsfaldi sínum.

Kratar, Vinstri grænir og Björt framtíð bjóða ekki upp á neitt nýtt þrátt fyrir uppákomur síðustu daga. Pólitík þeirra er gamaldags, úreld. Pólitík, sem flestir vilja losna við og hinn almenni kjósandi er löngu orðinn þreyttur á. Hve lengi höfum við kallað: fjórflokkinn burt? Mjög lengi. Alltof lengi!



Mín skoðun er, eftir af hafa fylgst gaumgæfilega með Samfylkingunni (áður Alþýðuflokknum), Vinstri grænum (áður Alþýðubandalaginu) og Bjartri framtíð er að tími þeirra sé útrunninn. Það sé misskilningur hjá forystumönnnum þessara flokka að verið sé að kalla eftir þeim til stjórnar landsins.



Það kann að vera, að sumum virðist stefna Pírata óljós. Ég hef skilning á því en tel mig skilja gildin og styð þau. Píratar mælast langstærsti stjórnmálaflokkur Íslands í könnunum. Ekki að ástæðulausu, þegar grannt er skoðað.



Í grunngildum flokksins felst mikilvæg undirliggjandi stefna. Skilningur á henni krefst lærdóms. Máski er það réttmæt krafa að gildin séu stílfærð með aðgengilegri hætti fyrir þá er telja sig ekki geta greint neina stjórnmálastefnu í þeim. Á það ekki síst við um eldri borgara og ónetvædda. - Ég get í vissum skilningi tekið undir þá kröfu. Fylgi við Pírata ykist stórum og væri það vel! Síðast en ekki síst eru Píratar, einn flokka, sem barist hefur fyrir gildistöku frumvarps Stjórnalagaráðs eins og það liggur fyrir, kosið var um og samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×