Körfubolti

Lakers vill fá Walton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Luke Walton ræðir við Steph Curry.
Luke Walton ræðir við Steph Curry. vísir/getty
Los Angeles Lakers hefur fengið leyfi frá Golden State Warriors til þess að ræða við aðstoðarþjálfara Warriors, Luke Walton, um að taka við Lakers-liðinu.

Lakers er án þjálfara eftir að hafa rekið Byron Scott um daginn. Þar sem Warriors er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar má Walton setjast að samningaborðinu við Lakers núna.

Walton er á öðru ári sem aðstoðarþjálfari Steve Kerr og stýrði liðinu í 43 leikjum í vetur er Kerr var frá vegna veikinda. Liðið vann 39 af þessum leikjum.

Walton er aðeins 36 ára gamall og þykir gríðarlega efnilegur þjálfari.  Hann spilaði í 10 ár í NBA-deildinni og þar af í 9 ár með Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×