Körfubolti

Golden State án Curry í undanúrslit | Charlotte vann þriðja leikinn í röð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
NBA-meistarar Golden State Warriors eru komnir áfram í undanúrslit vesturdeildar NBA körfuboltans eftir stórsigur á Houston Rockets, 114-81, í fimmta leik liðanna á heimavelli sínum í nótt.

Golden State spilaði án Stephen Curry í nótt en hafði lítið fyrir því að bursta Houston. Curry fær nú rúmlega viku til að jafna sig áður en undanúrslitin hefjast.

Klay Thompson sá um málin í fjarveru Curry og skoraði 27 stig, en hann setti niður sjö af ellefu þriggja stiga skotum sínum. Shaun Livingston skoraði 16 stig og gaf þrjár stoðsendingar í fjarveru Curry.

James Harden var að vanda atkvæðamestur í liði Houston með 35 stig en Dwight Howard átti risaleik undir körfunni og tók 21 frákast. Draymond Green var nálægt þrennu hjá Golden State með 15 stig, níu fráköst og átta stoðsendingar.

Eftir að vinna ekki leik í úrslitakeppninni í tólf ár og lenda 2-0 undir gegn Miami er Charlotte Hornets búið að snúa dæminu sér í hag. Liðið vann þriðja leikinn í röð í einvíginu og tók forystuna, 3-2, með 90-88 sigri á útivelli í nótt.

Marvin Williams var stigahæstur gestanna með 17 stig en þeir Al Jefferson og Kemba Walker skoruðu báðir 14. Dwayne Wade skoraði 25 stig fyrir Miami sem þarf að vinna í Charlotte í næsta leik ef það vill tryggja sér oddaleik á heimavelli.

Hér að ofan má sjá sigurkörfu Charlotte sem Courtney Lee skoraði.

Portland Trail Blazers gerði einnig góða ferð til Los Angeles og vann þar Clippers, 108-98, og tók forskotið í einvíginu, 3-2. Portland getur sent Clippers í sumarfrí á heimavelli í næsta leik liðanna.

C.J. McGollum skoraði 27 stig fyrir Portland og Damian Lillard 22 en J.J. Redick skoraði 19 stig fyrir Clippers.

C.J. McGollum fer á kostum gegn Clippers:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×