KR-ingar höfðu ekki látið neðrideildarlið slá sig út í 24 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2016 22:18 KR-ingar eru úr leik í bikarnum. Vísir/Ernir
KR-ingar hafa komist í undanúrslit bikarkeppninnar undanfarin átta ár og sex sinnum í bikarúrslitaleikinn á þessum átta árum. Liðið spilar hinsvegar bara einn bikarleik á árinu 2016 eftir 2-1 tap á móti 1. deildarliði Selfoss á KR-vellinum í kvöld. Selfoss, sem er aðeins í 9. sæti í 1. deildinni, tryggði sér sigurinn í framlengingu þar sem hinn 19 ára gamli Arnar Logi Sveinsson skoraði sigurmarkið á 116. mínútu. Þetta er í fyrsta sinn í 24 ár sem KR-ingar detta út úr bikarkeppninni á móti liði úr neðri deild en það gerðist síðast árið 1992. Þetta er líka í fyrsta sinn í sögunni sem KR-ingar detta út úr 32 liða úrslitum bikarkeppninnar en úrvalsdeildarliðin komu fyrst svo snemma inn í aðalkeppnina sumarið 1994. KR tapaði 2-1 á móti b-deildarliði Fylkis á Fylkisvellinum í 8 liða úrslitum bikarsins 1992 en árið áður hafði b-deildarlið Þórs frá Akureyri slegið KR-inga út í átta liða úrslitunum eftir 4-2 sigur á Akureyrarvellinum. Bjarni Sveinbjörnsson, faðir Birkis Bjarnasonar landsliðsmanns og EM-fara, skoraði tvö mörk fyrir Þórsliðið í þessum leik fyrir 25 árum síðan. Fylkismenn voru sumarið 1992 á toppnum í B-deildinni og enduðu á að vinna hana og tryggja sér sæti í efstu deild. Þórsarar urðu í öðru sæti í b-deildinni 1991 og komust upp. Árið eftir urðu þeir síðan í 3. sæti í A-deildinni sem nýliðar í deildinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Handbolti Fleiri fréttir Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Sjá meira