Stelpurnar vilja klára þetta með fullu húsi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2016 06:00 Margrét Lára Viðarsdóttir setur upp prakkarasvip eftir að Berglind Björg Þorvaldsdóttir fór illa með eitt af dauðafærum stelpnanna okkar í leiknum. vísir/Eyþór „
Ég er fyrst og fremst ánægður með mætinguna. Makedónía er ekki spennandi andstæðingur en mætingin var frábær,“ sagði landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn í gær. Hann kvaðst ánægður með frammistöðu íslenska liðsins sem hafði mikla yfirburði í leiknum. Til marks um það voru markskot Íslands 33 talsins en makedónska liðsins náði ekki einu skoti að marki í leiknum. „Við spiluðum leikinn þokkalega vel. Við vorum auðvitað miklu betra liðið og héldum áfram að æfa þann sóknarleik sem við viljum spila. Það er samt svo erfitt að spila svona leiki. En ég er mjög ánægður með hugarfarið og hvernig við kláruðum þetta.“ Ísland var 6-0 yfir í hálfleik en lét tvö mörk duga í seinni hálfleik þótt færin hafi verið fjölmörg. Harpa Þorsteinsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir skoruðu báðar tvö mörk í leiknum og þær Elín Metta Jensen, Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir sitt markið hvor. Þá gerði Emilija Stiolovska, leikmaður Makedóníu, sjálfsmark. Íslenska liðið hefur unnið alla sex leiki sína í undankeppninni með markatölunni 29-0 og situr á toppi riðils 1, þrátt fyrir að hafa leikið einum leik færra en Skotland. Ísland getur þó ekki fagnað EM-sætinu fyrr en um miðjan september þegar næstu leikir í undankeppninni verða leiknir. Stærðfræðin er það eina sem stendur á milli Íslands og þriðja Evrópumótsins í röð.Slakur mótherji Fyrri leikurinn gegn Makedóníu var spilaður við vart boðlegar aðstæður en völlurinn í Skopje var eins og mýri. Íslenska liðið kláraði þann leik með fjórum mörkum á fyrsta hálftímanum og lét svo gott heita. Í kvöld voru hins vegar fullkomnar aðstæður til að spila fótbolta og þá kom sá mikli getumunur sem er á liðunum enn betur í ljós. Freyr gerði fimm breytingar á byrjunarliðinu frá sigrinum frábæra gegn Skotum á föstudaginn en þær komu ekki niður á leik liðsins. Makedónska liðið er skelfilega slakt en íslensku stelpunum til hróss spiluðu þær leikinn af fullum krafti og sýndu gestunum enga miskunn. Leikmenn eins og Elín Metta fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína en Valskonan unga skoraði eitt mark, gaf tvær stoðsendingar og var síógnandi líkt og Fanndís á hinum kantinum. Eftir erfitt gengi á Algarve-mótinu 2015, þar sem íslenska liðið vann ekki leik og skoraði ekki mark, hefur Ísland leikið 13 leiki, unnið tíu, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum. Markatalan er 43-7. Og það besta er að spilamennska er góð og alltaf að verða betri.Á réttri leið Íslenska liðið er orðið betra í að stjórna leikjum og tekur oftar frumkvæðið en það gerði. Þá er hápressa Íslands afar vel útfærð og varnarleikur alls liðsins öflugur. „Ég er ánægður með framþróunina í leik liðsins. Við höfum haldið hreinu, ekki misstigið okkur á neinn hátt og klárað leikina örugglega.,“ sagði Freyr sem setur stefnuna á að klára undankeppnina með fullt hús stiga. „Það er stefnan, að halda áfram að vinna leiki í þessum riðli. Við viljum klára þetta með fullu húsi og helst fá ekki á okkur mark. Það væri geggjað.“ Andstæðingarnir á EM verða auðvitað miklu sterkari en sá sem Ísland sigraði í kvöld en frammistaðan í undankeppninni gefur mjög góð fyrirheit fyrir framhaldið. Íslenska landsliðið er svo sannarlega á réttri leið.
EM 2017 í Hollandi Tengdar fréttir Elín Metta: „Erum að verða sterkari og sterkari“ Elín Metta Jensen átti frábæra innkomu í byrjunarlið íslenska landsliðsins gegn Makedóníu. 7. júní 2016 22:20 Hallbera: „Við ætluðum að stúta þeim“ Hallbera Gísladóttir var afar kát í leikslok eftir öruggan sigur á Makedóníu. 7. júní 2016 22:05 Freyr: Fyllum völlinn 20. september Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið á EM 2017 eftir 8-0 stórsigur á Makedóníu á Laugardalsvelli í kvöld. 7. júní 2016 22:20 Harpa Þorsteins: Erum með einstakt lið Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk gegn Makedóníu og er orðin markahæsti leikmaður undankeppninnar. 7. júní 2016 22:43 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Makedónía 8-0 | Ísland hænuskrefi frá EM eftir markasúpu í Laugardalnum Stelpurnar okkur eru nú hænuskrefi frá því að tryggja sér sæti á EM 2017 í Hollandi eftir stærsta sigur íslenska landsliðsins í undankeppnini til þessa. 7. júní 2016 22:15 Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira
Elín Metta: „Erum að verða sterkari og sterkari“ Elín Metta Jensen átti frábæra innkomu í byrjunarlið íslenska landsliðsins gegn Makedóníu. 7. júní 2016 22:20
Hallbera: „Við ætluðum að stúta þeim“ Hallbera Gísladóttir var afar kát í leikslok eftir öruggan sigur á Makedóníu. 7. júní 2016 22:05
Freyr: Fyllum völlinn 20. september Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið á EM 2017 eftir 8-0 stórsigur á Makedóníu á Laugardalsvelli í kvöld. 7. júní 2016 22:20
Harpa Þorsteins: Erum með einstakt lið Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk gegn Makedóníu og er orðin markahæsti leikmaður undankeppninnar. 7. júní 2016 22:43
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Makedónía 8-0 | Ísland hænuskrefi frá EM eftir markasúpu í Laugardalnum Stelpurnar okkur eru nú hænuskrefi frá því að tryggja sér sæti á EM 2017 í Hollandi eftir stærsta sigur íslenska landsliðsins í undankeppnini til þessa. 7. júní 2016 22:15