Ákvörðun RÚV um að sýna æfingaleik Íslands og Liechtenstein í kvöld, og síðasta leik karlalandsliðsins fyrir EM í Frakklandi, á aðalrás sinni í kvöld en keppnisleik kvennaliðsins gegn Makedóníu annað kvöld á hliðarrás hefur verið gagnrýnd. Kvennaliðið getur með sigri gegn Makedóníu annað kvöld tryggt sæti sitt á EM í þriðja skipti í röð.
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, segir dagskrársetninguna eiga sér eðlilegar skýringar eins og annað sem dagskrársett sé gaumgæfilega og með tilliti til allra þátta sem fyrir liggi hverju sinni.
„Hvað varðar leik karlaliðsins í kvöld þá er sannarlega ekki um hefðbundinn og óbreyttan æfingarleik að ræða heldur er þetta kveðjuleikur liðsins áður en það heldur í fyrsta sinn á EM. Vinnuregla okkar er sú að dagskrársetja mikilvæga leiki landsliða okkar, bæði karla- og kvennalandsliða, á aðalrás sé þess kostur.“
Hins vegar raski umfjöllun RÚV um forsetakosningarnar því að hægt sé að sýna kvennaleikinn á aðalrásinni annað kvöld.
„Ástæðan fyrir því að leikur kvennalandsliðsins í forkeppni fyrir EM kvenna 2017 var hinsvegar dagskrársettur á RÚV2 er sú að hann skarast við mikilvægan dagskrárlið sem er Baráttan um Bessastaði, umfjöllun RÚV um frambjóðendur til forsetakosninga, sem vitanlega þarf að vera dagskrársettur með mjög formföstum, skýrum og samræmdum hætti, til að gæta jafnfræðis.“
RÚV muni hins vegar bregðast við á þann hátt að sýna seinni hálfleikinn á aðalrásinni, að lokinni umfjöllun um forsetaframbjóðendurna sem í þessu tilfelli er viðtal við Guðna Th. Jóhannesson.
„En eftir að kom á daginn með fræknum sigri kvennalandsliðsins á Skotum fyrir helgi að liðið gæti með sigri á Makedóníu á þriðjudag tryggt sér sæti á EM 2017 þá ákváðum við að bregðast við því og munum sýna seinni hálfleikinn strax að lokninni umfjöllun um forsetakosningarnar, en allur leikurinn verður eftir sem áður og að sjálfsögðu sýndur á RÚV2.“
Reikna má með því að dagskrá RÚV fyrir annað kvöld verði uppfærð í framhaldinu, á RUV.is og textavarpinu, en útsendingin mun hafa áhrif á sýningu þáttanna „Ekki bara leikur“ og „Átök í uppeldinu“.
RÚV bregst við og sýnir seinni hálfleikinn strax að loknu viðtali við Guðna Th.
Tengdar fréttir
Æfingaleikur karla fyrir alla og í háskerpu en ekki keppnisleikur kvenna
"Til háborinnar skammar“ segir knattspyrnukona um ákvörðun RÚV.