Heiðursdoktor Listaháskóla Íslands fyrstur manna Gunnþóra Gunnarsdóttir. skrifar 18. júní 2016 09:15 „Ég sé mig alltaf sem manninn á gólfinu,” segir Hjálmar sem brá svolítið svolítið þegar hann frétti um heiðursdoktorsnafnbótina. Vísir/Hanna
Þegar Fríða Björk rektor hringdi og kynnti mér þessa niðurstöðu skólans brá mér svolítið, nafnbótin hefur svo mikla virðingu yfir sér en ég sé mig alltaf sem manninn á gólfinu,“ segir Hjálmar H. Ragnarsson, nýbakaður heiðursdoktor við Listaháskólann. „En Hjálmar, ég vissi ekki að þú værir orðinn svona gamall!“ var það fyrsta sem Ásu konu minni datt í hug. Ég benti henni á að töluvert yngri maður en ég hefði fengið þessa nafnbót nýlega, Barack Obama. Mér líður ekki eins og þetta sé grafskrift.“ Hjálmar lét af embætti 2013 og kveðst þá aftur hafa farið í sitt „náttúrulega ástand,“ að vera tónskáld og tónlistarmaður. „Ég fór virkilega að æfa mig. Spilaði á píanóið marga klukktuíma á dag og hlustaði á tónlist, jafnvel það nýstárlegasta í tónlist samtímans. Er búinn að klára nokkur verk og nú er ég að vinna að píanóverki og öðru fyrir strengjahljómsveit.“ Hann kveðst annars vegar skáld laglínutónlistar og hinsvegar tilraunamaður. „Mér fannst, þegar ég hætti sem rektor, mikilvægt að endurnýja mig og fara eftir því sem ég hafði predikað í skólanum, að vera óhræddur við mistök. Undirstaða menntunar er að láta forvitnina leiða sig áfram.“ Sæmdina nú hlýtur Hjálmar fyrir starf sitt að uppbyggingu listmenntunar á háskólastigi. Hann var fyrsti rektor Listaháskólans sem kennsla hófst í 1999 og segir embættið hafa verið lærdómsferli. „Ég var listamaður en fór inn í stjórnunarhlutverk með mikla ábyrgð og veltu á fjármunum. En maður verður að vera nákvæmur og heiðarlegur í listinni, ég yfirfærði það í reksturinn og var líka með gott og ábyrgt fólk mér við hlið. Með margar listgreinar undir sama hatti var Listaháskólinn viss brautryðjandi á alþjóðavísu þegar hann byrjaði. „Við þurftum að finna töfraformúluna. En vorum svo heppin að hafa menntamálaráðherra sem hafði brennandi áhuga á skólanum, Björn Bjarnason. Ég skrifaði honum kannski um miðja nótt og fékk svar klukkan 05 - það var bara ekki sofið!“ segir Hjálmar. „Ég tek fram að ég tel mig fulltrúa þess hóps sem stóð að stofnun skólans. Það var ekki eins manns verk.“
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira