Handbolti

Keyrt yfir strákana okkar í síðari hálfleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fyrir leik liðanna í dag.
Fyrir leik liðanna í dag. mynd/hsí
Íslenska U-20 ára landsliðið mun leika um sjöunda sætið á EM í handbolta.

Ungu strákarnir okkar spiluðu umspilsleik við Dani í dag og töpuðu, 34-28. Íslenska liðið leiddi þó í hálfleik, 18-15.

Íslenska liðinu féll allur ketill í eld í síðari hálfleik á meðan Danirnir uxu við hverja raun.

Danir fara því í leikinn um fimmta sætið en okkar strákar spila annað hvort við Noreg eða Pólland um sjöunda sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×