Sumar myndirnar eru teknar á súpudaginn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 18. ágúst 2016 10:30 María tekur myndirnar á tíma og fær þannig þá hreyfingu í þær sem hún sækist eftir. Vísir/Ernir
Það er fullt af fólki á myndunum en ekki er hægt að greina andlit þess,“ segir María K. Steinsson ljósmyndari innt eftir myndefni á sýningunni Samfelld augnablik sem verður uppi á lofti í Iðnó á Menningarnótt, milli klukkan 13 og 23. „Þetta eru myndir úr seríu sem ég er búin að vinna að síðan 2014 - mannlífsmyndir en svolítið öðruvísi en algengastar eru af því ég tek þær á tíma. Þannig fæ ég hreyfingu í þær sem ég er að sækjast eftir. Ég hef áhuga á að nota myndavélina til að sýna meira en eitt augnablik, vil safna tímanum í myndina. Allt verður svolítið blörrað og fólkið eins og hálfgerðir draugar.“ María kveðst sæta lagi og fara út með myndavélina þegar einhverjir viðburðir eru eins og Menningarnótt, druslugangan eða Reykjavík Pride. „Þrjár myndanna á sýningunni eru teknar á súpudaginn þar er fólk í röðum að bíða eftir súpu.“ Hún lærði listmálun en segist líka alltaf hafa verið að taka myndir frá því hún man eftir sér þó það hafi ekki alltaf verið í listrænum tilgangi. Hún er með BA-gráðu í fögrum listum frá City & Guilds of London Art School í London þar sem hún var í námi á árunum 2005-2008 og Mastersnámi í ljósmyndun lauk hún við listadeild Kingston University í Bretlandi. Kveðst hafa byrjað þar að einbeita sér að þessum blörraða stíl. „Fyrst var ég mest sjálf fyrir framan myndavélina en nú er ég farin að fara út og beina linsunni að fólksfjölda,“ segir María en hægt er að kynna sér verk hennar nánar á heimasíðunni mariaksteinsson.com.
Menning Menningarnótt Mest lesið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira