Nefnt eftir varalit Stefán Þór Hjartarson skrifar 13. ágúst 2016 09:00 Cyber dregur nafn sitt af varalit sem var í miklu uppáhaldi hjá stelpunum. Mynd/Hrefna Björg Gylfadóttir
Cyber er samvinnuverkefni þeirra Sölku Valsdóttur og Jóhönnu Rakelar Jónasdóttur úr Reykjavíkurdætrum. Á miðvikudaginn gáfu þær út EP plötuna Crap sem er sjö laga stuttskífa sem kom út á Soundcloud-síðu sveitarinnar. Cyber hefur verið til í nokkurn tíma innan Reykjavíkurdætra samsteypunnar, í raun áður en Reykjavíkurdætur urðu til. Þær hafa áður gefið út lögin Sjálfstæðisfyllerí og Fiðringur en núna hafa þær tekið skrefið alla leið og gefið út plötu undir Cyber-nafninu.Hvernig eru þið ólíkar Reykjavíkurdætrum og af hverju eru þið í „sér“ hljómsveit?Salka: „Cyber er kannski ólíkast Reykjavíkurdætrum að því leyti að við erum bara tvær og vinnum þess vegna tónlistina okkar í nánara samstarfi en venjan er hjá Reykjavíkurdætrum. Við höfum það að markmiði að vinna að ákveðnu „soundi“ á meðan Reykjavíkurdætur snúast einmitt um að hafa rými til þess að mega vera mismunandi einstaklingar með alls konar „sound“ og pælingar.“Jóhanna: „Fyrir Airwaves 2011 var ég svo blönk að ég vældi í Sölku að byrja með mér í hljómsveit og reyna að fá frímiða. Við skírðum þessa hljómsveit eftir uppáhalds MAC-varalitnum okkar, á þeim tíma, sem var einmitt Cyber. Hins vegar átti Cyber upphaflega að vera diskó/trash-metal/pönk dúó. Allt þetta var samt meiri kjaftur í okkur en nokkuð annað. Í rauninni bjóst ég aldrei við því að við myndum gera nokkuð. Svo kem ég heim úr nokkurra mánaða Rússlandsferð um haustið 2013 og viku seinna stígum við á svið sem rapparar á Rappkonukvöldi sem Cyber.“Jóhanna og Salka voru í raun orðnar Cyber áður en þær urðu Reykjavíkurdætur.Mynd/Hrefna Björg GylfadóttirHvernig plata er þetta? Eruð þið að vinna með einhverjar sérstakar pælingar? Eru gestir? Hverjir pródúsa?Salka: „Þessi plata er að mörgu leyti drungaleg en samt lífleg og skemmtileg. Það er mjög mikil tilfinning í hverju lagi og lögin í sjálfu sér ólík en samt er einhver „X-factor“ sem bindur þau saman. Lögin eru unnin í mjög nánu samstarfi með ólíkum pródúserum og við erum líka að vinna mikið með vókal sem hljóðfæri á flestum lögum plötunnar. Platan er eins og gengur og gerist þrútin af upplýsingum og pælingum, sem gerist gjarnan með jafn textamiðaða tónlist og rapptónlist er. Platan sem heild er ekki að vinna með neitt sérstakt þema, það er helst bara að tónlistin er unnin í mjög nánu samstarfi og er þess vegna persónuleg og mikið unnin. MC Blær er með okkur í tveim lögum, en Blær hefur einmitt unnið mikið með okkur í gegnum árin og þegar við ákváðum að gera þessa EP þá kom ekki til greina að hún myndi ekkert koma að henni. Hún er soldið eins og stóra systir okkar. Við vorum ótrúlega heppnar að fá svo geðveikt mikið af flottum pródúserum að vinna með okkur þ.e. Dj. Flugvél og geimskip, Russian.girls, TY og Marmara.“Þarf ekki að fagna svona útgáfu? Er eitthvað fleira að fæðast hjá ykkur?Salka: „Við ætlum að halda útgáfutónleika þann 17. ágúst á vinnustofunni minni á Fiskislóð. Þar verður líka sýnt myndband og mögulega stíga á svið fleiri hljómsveitir. Við erum mjög spenntar að halda þetta á vinnustofunni þar sem við unnum mikið að plötunni þar og ætlum okkur að skapa alveg einstakt rými fyrir útgáfuna. Líkt og árið 2011 þá ætlum við okkur enn þá að fá að spila á Airwaves, svo við stefnum á það. Annars verður vonandi bara nóg að gera hjá okkur í framhaldi af þessari plötu!“
Airwaves Tónlist Mest lesið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Stjörnulífið: Töru Sif meinað að fara í bað Lífið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Lítill bróðir mættur: „Fullkominn, stór og sterkur“ Lífið „Eini metnaðurinn minn var að líða ekki illa“ Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Hjálmari Erni leið eins og manninum í Slumdog Millionaire í Kviss Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Fleiri fréttir „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Sjá meira