Handbolti

Zeitz snýr aftur til Kiel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zeitz fagnar hér með Alfreð hjá Kiel og Guðjón Valur brosir.
Zeitz fagnar hér með Alfreð hjá Kiel og Guðjón Valur brosir. vísir/getty
Skyttan skrautlega Christian Zeitz hefur yfirgefið Aron Pálmarsson og félaga hjá Veszprém og er skriðinn aftur í heitan faðm Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel.

Zeitz er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Kiel.

Hann var í herbúðum félagsins frá 2003 til 2014 er hann fór til Veszprém. Zeitz er að verða 36 ára gamall.

„Zeitz mun hjálpa okkur í sókn og vörn. Það er gott að fá hann aftur,“ sagði Alfreð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×