Handbolti

Sex mörk Arnórs Þórs dugðu skammt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór Þór skoraði sex mörk úr sex skotum í leiknum í dag.
Arnór Þór skoraði sex mörk úr sex skotum í leiknum í dag. vísir/getty
Björgvin Páll Gústavsson, Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer fengu á baukinn gegn Leipzig í 1. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag.

Bergischer steinlá þá 30-21 eftir að hafa verið sex mörkum undir í hálfleik, 14-8.

Arnór Þór var markahæstur í liði Bergischer með sex mörk en fimm þeirra komu úr vítum. Arnór brenndi ekki af skoti í leiknum.

Björgvin fann sig ekki í markinu og varði aðeins tvö af þeim 13 skotum sem hann fékk á sig.

Næsti leikur Bergischer er gegn Gummersbach á heimavelli eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×