Fótbolti

Eiður Smári: Ísland hefur alltaf átt góða fótboltamenn en nú tekur heimurinn eftir þeim

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen segir Ísland alltaf hafa átt góða fótboltamenn.
Eiður Smári Guðjohnsen segir Ísland alltaf hafa átt góða fótboltamenn. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, segir í viðtali við Sportskeeda að Ísland hafi lengi verið með fótboltahefð þrátt fyrir að árangurinn hafi látið á sér standa þar til á síðustu misserum.

Karlalandsliðið komst í fyrsta sinn á stórmót í sumar þar sem það kom heiminum á óvart með því að leggja England í 16 liða úrslitum og komast alla leið í átta liða úrslitin í frumraun sinni á stóra sviðinu.

„Ég tel að Ísland hafi alltaf verið með fótboltahefð,“ segir Eiður Smári í viðtalinu aðspurður hvers vegna fótboltahefðin sé í raun engin hér á landi. Hann er ekki sammála því. Eiður var einnig beðinn um að útskýra hverjir eru helstu styrkleikar íslenskra fótboltamanna.

„Það er bara á síðustu árum sem heimurinn hefur tekið eftir frammistöðu okkar og úrslitum en við höfum alltaf verið með leikmenn að spila í bestu deildunum,“ segir Eiður Smári.

Eiður Smári kemur inn á fyrir einn af þessum góðu íslensku fótboltamönnum.vísir/getty
Framtíðin óráðin

„Nú þegar við erum búnir að spila á EM þekkja fleiri íslensku nöfnin en við höfum alltaf átt góða leikmenn. Okkar helstu styrkleikar eru náttúrulegur líkamsstyrkur og vilji okkar til að leggja okkur alla fram á vellinum. Sá karakter í bland við hæfileika hefur fleytt okkur þangað sem við erum í dag.“

Eiður er orðinn 37 ára gamall en hefur nú nýtt ævintýri með FC Pune í Indlandi en hann er staddur í æfingaferð með liðinu á Spáni. Hann viðurkennir að hann er byrjaður að hugsa um hvað tekur við eftir leikmannaferilinn.

„Auðvitað er ég byrjaður að hugsa um það. Ég er bara svo heppinn að geta enn verið að spila. Ég hef enn orku og ég elska að mæta á æfingu á hverjum degi. Á meðan ég get gefið liðinu sem ég spila fyrir eitthvað þá held ég áfram að spila,“ segir Eiður.

„Hvað framtíðina varðar þá vil ég eyða meiri tíma með börnunum og fjölskyldunni þegar ég horfi styttra fram í tímann en eftir að ferlinum lýkur verður eitthvað sem tengist fótbolta í kortunum. Ég þarf bara að finna út hvað ég vil gera,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×