Körfubolti

Hörður Axel spilar með Keflavík í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. vísir/valli
Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson er búinn að skrifa undir samning við Keflavík og spilar með liðinu gegn Njarðvík í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 18.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

„Þetta hefur tekið sinn tíma en það er búið að ganga frá öllum pappírum og hann er orðinn löglegur. Hörður Axel spilar með okkur í kvöld,“ sagði glaðhlakkalegur formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, Ingvi Þór Hákonarson.

„Þetta var eiginlega orðið klárt í gær en pappírarnir komu frá Grikklandi í dag. Hann má því spila.“

Hörður Axel samdi við Keflavík í upphafi sumars en fór svo til Grikklands. Þar gengu hlutirnir ekki upp og hann er því kominn aftur heim.

Ingvi Þór segir að Hörður Axel sé með ákvæði um að komast aftur út berist afar freistandi tilboð. Sá gluggi verður þó ekki opinn í allan vetur.

„Við viljum ekki halda honum frá því að fara út ef eitthvað svaðalegt kemur upp en ég hef fulla trú á því að hann verði með okkur í allan vetur,“ segir Ingvi.

Hörður Axel hefur undanfarin fimm ár leikið sem atvinnumaður í Evrópu, fyrst í Þýskalandi en svo á Spáni, í Grikklandi og Tékklandi. Hörður Axel var búinn að semja við Rethymno Cretan Kings B.C. í Grikklandi en allt breyttust eftir að gríska liðið skipti um þjálfara.  

Hörður Axel lék á sínum tíma í þrjú tímabil með Keflavík frá 2008 til 2011 en hann er uppalinn í Fjölni og lék með Njarðvík í eitt tímabil áður en hann skipti yfir til nágrannanna.

Hörður Axel var með 16,5 stig og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðasta tímabili sínu með Keflavíkurliðinu 2010-11. Keflavík endaði þá í þriðja sæti í deildarkeppninni og datt út í oddaleik á móti verðandi Íslandsmeisturum KR. Keflavík hafði farið í lokaúrslitin árið áður.

Hörður Axel hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og hefur skorað 335 stig í 57 landsleikjum. Hann var stoðsendingahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í undankeppni EM þar sem Ísland tryggði sig inn á annað Eurobasket í röð.

Hörður Axel var með 6,5 stig, 5,0 stoðsendingar og 4,0 fráköst í leik í Evrópuleikjunum í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×