Körfubolti

Körfuboltakvöld: Sérstök útgáfa af Fannar skammar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fyrsti þáttur Domino's Körfuboltakvölds var sendur beint út frá Kex Hostel á föstudaginn var.

Þar hituðu Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingar hans, Fannar Ólafsson, Hermann Hauksson og Kristinn Friðriksson, upp fyrir tímabilið sem framundan er í Domino's deild karla.

Ýmsar nýjungir voru kynntar til leiks í upphitunarþættinum en gamlir liðir snúa líka aftur, þ.á.m. Fannar skammar þar sem gamli miðherjinn fer á kostum.

Fannar skammar var að sjálfsögðu á sínum stað í upphitunarþættinum á föstudaginn og þá í sérstakri útgáfu.

Fannar skammar má sjá í spilaranum hér að ofan. Hér að neðan má svo sjá upphitunarþáttinn í heild sinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×