Handbolti

Snorri Steinn í úrvalsliði annarrar umferðar

Snorri Steinn í leik með Nimes.
Snorri Steinn í leik með Nimes. mynd/nimes
Snorri Steinn Guðjónsson var valinn í úrvalsliðið í annarri umferð frönsku deildarinnar í handbolta en valið var kynnt í dag.

Snorri og félagar hafa byrjað tímabilið af krafti og í annarri umferð unnu þeir öruggan átta marka sigur á útivelli 39-31 gegn Saran.

Snorri er eini leikmaður Nimes í liðinu en ásamt honum er Francis Xavier Chapon í markinu, Nicolas Tournat, Gabriel Loesch, Baptist Butto, Adrien Di Panda og Mikkel Hansen.

Næsti leikur Nimes er gegn stigalausu liði Toulouse á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×