Engin gleðimynd en áhrifarík Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 12. október 2016 09:15 "Við erum þrjú sem stöndum að myndinni en hún er eiginlega mér að kenna,“ segir smiðurinn Haukur. Vísir/GVA „
Ég telst jú einn af leikstjórum myndarinnar, þó að ég sé smiður að aðalatvinnu. Við erum þrjú sem stöndum að henni en hún er eiginlega mér að kenna,“ segir Haukur Sigvaldason, hugmyndasmiður að heimildarmyndinni Brotið. Hún fjallar um aftakaveður sem skall á í dymbilvikunni árið 1963 með þeim afleiðingum að sjö sjómenn fórust frá Dalvík og þrettán börn misstu feður sína, þar á meðal Haukur. Brotið verður sýnt í Bíói Paradís við Hverfisgötu á morgun. „Við köllum þetta frumsýningu sunnan heiða en Dalvíkingar fengu að sjá myndina í fiskidagsvikunni, meðan hún var enn í klippivélinni og svo sýndum við á Ólafsfirði um síðustu helgi. Þetta er engin gleðimynd en henni var vel tekið því fólki fannst hún áhrifarík,“ segir Haukur. Ástæðu hinna skyndilegu veðurbreytinga í apríl 1964 segir Haukur þá að hlýr loftmassi hafi legið yfir landinu um tíma þegar allt í einu hafi komið ískaldur strókur frá Grænlandi, sem ekki hafði komið fram í spám. „Þessi kaldi massi ræðst á hlýja loftið og úr verður hvellur sem stóð í þrjá daga með látum. En aðfaranótt 9. apríl höfðu sjómenn á Dalvík haldið til veiða, enda veðurspáin þokkaleg. Voru á línu austur á Skjálfanda í steinbít, grandalausir, þegar veðrið réðist að þeim. Það fórust fjórir Dalvíkurbátar í þessum látum en mannbjörg varð af tveimur trillum. Strandferðaskipið Esjan kom að Valnum sem faðir minn og Gunnar bróðir hans voru á og menn um borð í Esjunni urðu vitni að því þegar Valurinn fer niður. Þeir höfðu boðið fram hjálp sína en báturinn var atvinnutæki Gunnars og hann var ekki tilbúinn til að fórna því bardagalaust. Þeir voru samt snúnir heim.“Stilla úr Brotinu sem verður frumsýnt sunnan heiða í Bíói Paradís á morgun.Atburðurinn var lítið ræddur á Dalvík, að sögn Hauks, hvort sem menn höfðu barist fyrir lífi sínu, reynt að aðstoða á hafi úti eða beðið í ofvæni í landi. „Við börnin spurðum en mættum bara þögn sem var þess tíma lenska að takast á við áföll. Þetta truflaði mig og ég ákvað sem ungur strákur að þegar ég hefði þroska til skyldi ég kafa ofan í þetta mál og gera minningu þessara manna einhver skil. Ég dró Maríu Jónsdóttur, bekkjarsystur mína, inn í verkefnið, hún var að læra margmiðlunarhönnun þegar við byrjuðum og svo er bróðursonur minn, Stefán Loftsson kvikmyndagerðarmaður, með okkur. Hann er að fjalla þarna um afa sinn svo okkur er báðum málið skylt.“ Brotið verður sýnt í Bíói Paradís á morgun, fimmtudag, klukkan 18. Haukur tekur fram að sýningar verði líka á föstudag, laugardag og sunnudag, alltaf á sama tíma, klukkan sex. „Þarna er auðvitað verið að rífa upp gömul sár en öll samfélög kringum landið eiga svipaða sögu og þessa. Myndin er hugsuð til heiðra þá drengi sem lögðu á vissan hátt grunninn að þeirri velferð sem við njótum í dag,“ segir Haukur og heldur áfram: „Mér finnst við gera stundum of lítið úr bakgrunni okkar og því sem aðrir lögðu á sig fyrir okkur. Ríku karlarnir fá of mikla umfjöllun um ekki neitt. Þetta er minn þankagangur.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. október 2016.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira