Frestur til að skila inn lögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins útrunninn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. október 2016 15:26 Greta Salóme tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í ár. vísir/pressphotos
Frestur til að skila inn framlögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2017 rann út í hádeginu í dag. Fjöldi laga barst Ríkisútvarpinu og mun lagavalnefnd hefja störf strax á morgun, að sögn Rúnars Freys Gíslasonar, verkefnastjóra keppninnar. „Valnefnd hefur störf núna um helgina og skilar af sér þegar hún hefur komist að niðurstöðu, sem verður einhvern tímann um helgina. Þá verður talað við þá sem koma til greina og við gerum ráð fyrir því að þetta verði komið á hreint fyrsta desember,“ segir Rúnar í samtali við Vísi. Hann segir að við fyrstu sýn séu lögin líklega fleiri en í fyrra, en að enn eigi eftir að yfirfara þau öll.Sjá einnig:Besta íslenska lagið sem ekki vann undankeppninaLeynd yfir framlögunum og valnefndinniSamkvæmt reglum keppninnar þurfa höfundar að velja sér dulnefni þegar þeir skila inn framlagi sínu þar sem lagavalnefnd fær aðeins uppgefin dulnefnin og nöfn laga í valferlinu, en að sögn Rúnars hvílir jafnframt leynd yfir því hverjir sitja í umræddri lagavalnefnd. Nefndin sé hins vegar skipuð af tveimur fulltrúum úr Félagi tónskálda og textahöfunda, tveimur frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna og þremur frá Ríkisútvarpinu. Öll lög eru flutt á íslensku í forkeppninni, en þau lög sem komast áfram í úrslit skulu flutt á því tungumáli sem höfundur hyggst flytja lagið á í Eurovision í Úkraínu, skyldi það vinna.Sjá einnig:Átján skipa dómnefnd Söngvakeppninnar Söngvakeppnin fer fram í þremur beinum útsendingum. Forkeppnir verða 25. febrúar og 4. mars í Háskólabíó og úrslitin fara fram í Laugardalshöll 11. mars. Keppnin var með glæsilegasta móti í ár í tilefni af þrjátíu ára afmæli hennar og að sögn Rúnars verður aftur lagt allt í að gera keppnina eins glæsilega og síðast. „Þetta þótti takast svo vel að vera með tvær forkeppnir í Háskólabíó og eina stóra bombu í Laugardalshöll að við ætlum að gera þetta aftur. Við erum byrjuð að skipuleggja og það er allt að fara af stað núna. Þetta er náttúrulega ótrúlega stór og viðamikil keppni og margt að athuga,“ segir Rúnar.Sjá einnig:Saga einvíga í Söngvakeppni Sjónvarpsins Rúnar vill þó ekki gefa upp hver áætlaður kostnaður við keppnina sé, en að líklega verði hann sá sami og síðast, eða í kringum sextíu milljónir. Á vef RÚV segir að keppnin hafi staðið undir sér í fyrra með tekjum af miðasölu og auglýsingum. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin 9. maí næstkomandi í Kænugarði í Úkraínu. Heyra má lagið sem bar sigur úr býtum í keppninni hér fyrir neðan.
Eurovision Tengdar fréttir Íslenska dómnefndin var alls ekki sammála um hvaða lag ætti að sigra í Eurovision Völdu ýmist Holland, Króatíu, Svíþjóð, Spán eða Ástralíu. Úkraínska sigurlagið fékk ekkert stig. "Lagið náði mér ekki.“ 17. maí 2016 12:10 Fréttaskýring: Saga einvíga í Söngvakeppni Sjónvarpsins Einvígin voru sett á eftir umdeild úrslit árið 2012. 14. febrúar 2015 12:00 Úkraína vann Eurovision Jamala stóð uppi sem sigurvegari með 1944. 14. maí 2016 22:23 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira
Íslenska dómnefndin var alls ekki sammála um hvaða lag ætti að sigra í Eurovision Völdu ýmist Holland, Króatíu, Svíþjóð, Spán eða Ástralíu. Úkraínska sigurlagið fékk ekkert stig. "Lagið náði mér ekki.“ 17. maí 2016 12:10
Fréttaskýring: Saga einvíga í Söngvakeppni Sjónvarpsins Einvígin voru sett á eftir umdeild úrslit árið 2012. 14. febrúar 2015 12:00