Körfubolti

157 leikja hrina Curry með þriggja stiga körfu á enda

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Curry náði sér ekki á strik gegn Lakers.
Curry náði sér ekki á strik gegn Lakers. Vísir/getty
Steph Curry, leikstjórnandi Golden State Warriors, hafði leikið 157 leiki í röð þar sem hann setti niður þriggja stiga körfu þar til kom að óvæntu tapi Warriors gegn Lakers í nótt.

Curry sem hefur á þessum tíma verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar (e. MVP) í tvígang og tætt í sig gömul met í þriggja stiga skotum.

Curry tók alls tíu skot fyrir aftan þriggja stiga línuna í gær en honum tókst ekki að nýta eitt þeirra.

Ef leikir í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eru teknir með inn í myndina var Curry búinn að hitta úr þriggja stiga skoti í 196 leikjum.

Var það 11. nóvember árið 2014 þegar Curry mistókst síðast að setja niður þriggja stiga skot þar til kom að leiknum í dag.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×