Körfubolti

NBA-liðin náðu ekki sambandi við Pétur sem var að spila heima á Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pétur Guðmundsson.
Pétur Guðmundsson. Vísir/Hari
Íslenski NBA-leikmaðurinn Pétur Guðmundsson var í skemmtilegu viðtali hjá „The Handle Podcast“ þar sem var farið vel yfir magnaðan feril hans.

Pétur varð á sínum tíma fyrsti leikmaðurinn, sem fæddur og alinn upp í Evrópu, til að spila í NBA-deildinni í körfubolta.

Pétur var valinn af Portland Trail Blazers í nýliðavalinu 1981 en íslenski miðherjinn spilaði einnig með Magic Johnson og Kareem Abdul-Jabbar hjá Los Angeles Lakers 1985-86 og svo hjá liði San Antonio Spurs 1987-89.

Pétur lék alls 150 leiki í deildarkeppni NBA og 14 leiki í úrslitakeppninni. Hann var með 4,6 stig, 3,8 fráköst og 1,0 stoðsendingu að meðaltali á 13,7 mínútum í leik í deildarleikjum sínum.

Pétur segir margar skemmtilegar sögu frá ferlinum í viðtalinu þar á meðal þegar Portland Trail Blazers setti hann í bann haustið 1982 og hann missti í framhaldinu sambandið við umboðsmanninn sinn.

Veturinn 1982-83 spilaði hann með ÍR á Íslandi en vissi ekkert af því að hinum megin við Atlantshafið voru fullt af NBA-liðum að reyna að komast í samband til að bjóða honum samning. Pétur frétti ekki af því fyrr en eftir tímabilið.

Pétur segir einnig frá því þegar Detroit Pistons lét hann fara fyrir 1983-84 tímabilið og hvernig hann komst aftur inn í NBA-deildina eftir að hafa spilað með í Kansas City Sizzlers í CBA-deildinni. Vera Péturs þar skilaði honum samningi hjá Los Angeles Lakers vorið 1986 þar sem hann var varamaður Kareem Abdul-Jabbar.

Pétur var með 14 stig og 9 fráköst í fyrsta leik og hann skoraði 15 stig og 6 fráköst í lokaleik deildarkeppninnar. Pétur var einnig með 10 stig í fyrsta leik Lakers í úrslitakeppninni 1986 og skoraði 25 í fyrstu þremur leikjunum.

Pétur segir einnig frá meiðslum sínum við lok ferilsins og hvað hefur tekið við eftir að körfuboltaferli hans lauk.

Það er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal með því að smella hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×