Handbolti

Naumt tap hjá Birnu og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Birna Berg í leik með Glassverket.
Birna Berg í leik með Glassverket. vísir/getty
Birna Berg Haraldsdóttir og félagar í norska liðinu Glassverket voru mjög nærri því að næla í sitt fyrsta stig í Meistaradeildinni í kvöld.

Þá þurfti liðið að sætta sig við tap, 22-21, gegn Buducnost frá Makedóníu. Glassverket hefði getað jafnað leikinn en síðasta skot leiksins fór fram hjá markinu.

Birna Berg skoraði þrjú mörk úr níu skotum í kvöld.

Þetta var lokaleikurinn í A-riðli Meistararadeildarinnar og Glassverket verður að sætta sig við neðsta sætið án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×