Handbolti

Tap hjá liði Vignis í Búkarest

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vignir í landsleik.
Vignir í landsleik. vísir/valli
Team Tvis Holstebro, lið Vignis Svavarssonar, fór ekki neina sigurför til Rúmeníu i Meistaradeildinni í kvöld.

Eftir jafnan fyrri hálfleik, sem endaði 12-12, sigldi lið Dinamo Búkarest fram úr í síðari hálfleik og vann öruggan sigur, 30-25.

Vignir skoraði eitt mark úr þremur skotum í leiknum.

Holstebro er í neðsta sæti D-riðils Meistaradeildarinnar eftir með 3 stig eftir sjö leiki. Búkarest er í fjórða sæti með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×