Körfubolti

Atkinson snýr aftur á miðvikudaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atkinson endurnýjar kynnin við Domino's deildina og Leif Garðarsson áður en langt um líður.
Atkinson endurnýjar kynnin við Domino's deildina og Leif Garðarsson áður en langt um líður. vísir/anton
Jeremy Atkinson verður með Njarðvík í leiknum gegn Haukum á miðvikudagskvöldið. Þetta kemur fram á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.

Atkinson lék með Njarðvík síðari hluta síðasta tímabils og hahn snýr því aftur í græna búninginn.

Njarðvíkingar hafa verið í miklum vandræðum inni í teig á tímabilinu og eftir sex umferðir hefur aðeins botnlið Snæfells tekið færri fráköst að meðaltali í leik en Njarðvík.

Miðherjinn Corbin Jackson þótti ekki standa undir væntingum og var sendur heim eftir fjóra leiki og Atkinson er ætlað að fylla hans skarð.

Atkinson lék 19 leiki með Njarðvík í fyrra. Hann var með 19,6 stig, 10,0 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðatali í leik.

Atkinson, sem verður 26 ára síðar í mánuðinum, lék áður með Stjörnunni, síðari hluta tímabilsins 2014-15.

Njarðvík er með fjögur stig í 9. sæti Domino's deildarinnar.


Tengdar fréttir

Gunnar Örlygsson: Rekið mig frekar en þjálfarann

Gunnar Örlygsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, tjáði sig um þjálfaramál karlaliðs félagsins á fésbókinni í kvöld eftir að Njarðvíkurliðið datt út úr Maltbikarnum á móti nágrönnum sínum í Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×