Handbolti

Hörmuleg byrjun sló Þóri og norsku stelpurnar ekki útaf laginu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Hergeirsson sýnir tilþrif á hliðarlínunni á EM.
Þórir Hergeirsson sýnir tilþrif á hliðarlínunni á EM. Vísir/AFP
Noregur og Danmörk enduðu bæði riðlakeppnina á EM kvenna í handbolta með fullt hús en þau þurftu bæði að grafa sig upp úr holu í lokaumferðinni í kvöld.  Þórir Hergeirsson þurfti að taka leikhlé snemma til að rétta af leik sinna stelpna í norska liðinu.

Norsku stelpurnar unnu á endanum tveggja marka sigur á Rússum, 23-21 og unnu D-riðilinn en dönsku stelpurnar unnu þriggja marka sigur á Tékkum, 32-29, og unnu með því C-riðilinn.

Bæði lið fara því með fjögur stig inn í milliriðil tvö en keppni í honum hefst strax á sunnudaginn. Önnur lið í milliriðlinum eru Tékkland (2 stig), Ungverjaland (0 stig), Rúmenía (2 stig) og Rússland (0 stig).

Norska liðið náði með þessu að hefna fyrir tapið fyrir Rússum í framlengdum undanúrslitaleik á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst.

Útlitið var ekki bjart hjá norska liðinu í byrjun því Þórir Hergeirsson þurfti að taka leikhlé eftir aðeins fimm mínútur þegar staðan var orðin 4-0 fyrir Rússa. Norsku stelpurnar voru búnar að jafna í 8-8 eftir 18 mínútur en staðan var 11-11 í hálfleik.

Rússar voru 16-15 yfir eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en þá kom flottur átta mínútna kafla hjá þeim norsku sem unnu hann 5-1 og komust þremur mörkum yfir, 20-17.

Silje Solberg stóð sig vel í norska markinu og var valin besti maður leiksins. Veronica Kristiansen og Nora Mörk voru markahæstar með fimm mörk hvor.

Dönsku stelpurnar lentu 3-0 undir í byrjun og voru fjórum mörkum undir í hálfleik, 17-13. Danska liðið jafnaði metin í 21-21 eftir þrettán mínútna leik í seinni hálfleik og náði síðan mest fimm marka mun, 31-26 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir.

Tékkar löguðu stöðuna aðeins á lokamínútunum en náðu ekki að ógna dönskum sigri að einhverju ráði. Stine Jorgensen skoraði átta mörk úr tíu skotum hjá Dönum og Anne Mette Hansen var með sex mörk.


Tengdar fréttir

Tekst Þóri loks að vinna sigur á Rússum?

Þrátt fyrir að hafa unnið allt sem hægt er að vinna sem þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta hefur Þórir Hergeirsson aldrei stýrt Noregi til sigurs á Rússlandi í keppnisleik.

Króatar og Svartfellingar á heimaleið af EM

Króatía og Svartfjallaland eru úr leik á Evrópumóti kvenna í handbolta eftir að bæði þessi lið töpuðu leikjum sínum í í kvöld en þá fór fram lokaumferð riðlakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×