Körfubolti

Daníel: Auðvitað óttast ég um mína stöðu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Daníel Guðmundsson er þjálfari Njarðvíkur.
Daníel Guðmundsson er þjálfari Njarðvíkur.
Daníel Guðmundsson þjálfari Njarðvíkur var þungur á brún þegar Vísir hitti hann eftir leik í kvöld enda Njarðvík að tapa sínum þriðja leik í röð í Dominos-deildinni.

„Ef við horfum á stigatöfluna þá lítur þetta illa út. Varnarleikurinn er lélegur þriðja leikinn í röð hjá okkur. Ég er að endurtaka mig leik eftir leik um sömu atriðin og sama hversu mikið við leikgreinum fyrir leiki þá er varnarleikurinn lélegur. Ég er ekki alveg að átta mig á hvað ég þarf að gera betur til að stimpla þetta inn,“ sagði Daníel þegar Vísir ræddi við hann eftir leik.

Njarðvíkingar misstu Þórsara snemma fram úr sér og náðu aldrei að brúa bilið eftir það. Þeir náðu muninum aldrei niður fyrir 10 stig og virtist ákveðið andleysi vera yfir liðinu.

„Mér finnst strákarnir alveg vera að leggja sig fram en það er bara ekki nóg. Við erum að rúlla á sjö mönnum og einn af þeim er fertugur. Lykilmenn þurfa hvíld í leiknum sem ég get ekki veitt þeim. Menn voru að reyna að komast aftur inn í leikinn í fjórða leikhluta en þá svöruðu þeir með þristum.“

Njarðvíkingar sitja í fallsæti yfir hátíðirnar, eitthvað sem menn þar á bæ eru ekki vanir. Daníel sagði það leiðinlegt og viðurkenndi að hann óttaðist um sína stöðu.

„Jú, ég geri það. Ég er búinn að tapa þremur leikjum í röð og er þjálfari Njarðvíkur. Auðvitað óttast ég um mína stöðu.“

„En ég horfi bjartsýnn á framhaldið. Staðan núna er hundleiðinleg og ekki það sem ég hafði gert ráð fyrir í upphafi. Meiðsli og sveiflur hvað varðar erlenda leikmenn hafa haft áhrif á liðið. Í janúar, ef allt gengur að óskum, ættum að vera fullmannaðir í fyrsta leik,“ sagði Daníel við Vísi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×