Handbolti

Sterkur sigur hjá Nimes

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ásgeir Örn átti flottan leik í kvöld.
Ásgeir Örn átti flottan leik í kvöld. vísir/epa
Íslendingaliðið Nimes styrkti stöðu sína í sjötta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld með öruggum sigri.

Að þessu sinni náði Nimes að skella liði Chambery, 17-22. Augljóslega frábær varnarleikur sem lagði grunninn að þessum sigri en Chambery er í sætinu fyrir ofan Nimes.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir Nimes en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tvö mörk úr sex skotum.

Cesson-Rennes sótti Saran heim en var alltaf skrefi á eftir og tapaði að lokum með fjögurra marka mun, 30-26.

Geir Guðmundsson spilaði með Cesson-Rennes, tók eitt skot á markið en skoraði ekki. Cesson-Rennes er í tíunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×