Handbolti

Vignir í banastuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vignir Svavarsson.
Vignir Svavarsson. vísir/getty
Vignir Svavarsson fór hamförum og skoraði sex mörk úr átta skotum í sigri síns liðs, Team Tvis Holstebro, á Tönder. Lokatölur 23-28 fyrir Holstebro sem er í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.

Tandri Már Konráðsson skoraði eitt mark fyrir Skjern sem tapaði á útivelli, 34-28, gegn GOG. Liðið er í fjórða sæti.

Viggó Kristjánsson og félagar í Randers fengu á baukinn á heimavelli sínum er Midtjylland kom í heimsókn.  Midtjylland vann stórsigur, 18-31.

Viggó skoraði eitt mark úr víti en klúðraði öllum þremur skotum sínum utan af velli fyrir Randers sem situr í neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×