Handbolti

Hammarby komst upp úr botnsætinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Örn Ingi Bjarkason.
Örn Ingi Bjarkason. vísir/stefán
Örn Ingi Bjarkason og félagar í sænska liðinu Hammarby unnu sjaldséðan sigur í kvöld er þeir skelltu Guf, 30-28.

Örn Ingi skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum í kvöld. Alexander Mörsten átti stórleik í liði Hammarby og skoraði tíu mörk.

Þetta var aðeins annar sigurleikur Hammarby í fimmtán leikjum í sænsku deildinni.

Hann fleytir liðinu þó upp fyrir Ystad sem er nú komið í júmbósætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×