Körfubolti

NBA: Fullt af framlengingum og Spurs endaði sigurgöngu Houston | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þrír leikir voru framlengdir í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar á meðal einn tvíframlengdur. San Antonio endaði tíu leikja sigurgöngu Houston Rockets og bæði Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors unnu leiki sína en þá á mjög ólíkan hátt.

Patty Mills tryggði San Antonio Spurs 102-100 útisigur á Houston Rockets með þriggja stiga körfur 12,9 sekúndum fyrir leikslok. Spurs endaði þar með tíu leikja sigurgöngu Houston og fagnaði jafnframt fimmta sigri sínum í röð.

San Antonio liðið hefur nú unnið 15 af 16 útileikjum sínum í vetur. Kawhi Leonard var stigahæstur hjá Spurs með 21 stig en LaMarcus Aldridge bætti við 17 stigum og 10 fráköstum. James Harden var með 31 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar í liði Houston.



LeBron James kom Cleveland Cavaliers endanlega í forystu í framlengingunni í 114-108 sigri á Milwaukee Bucks en Bucks-liðið hafði unnið NBA-meistarana fyrr í vetur.

Giannis Antetokounmpo kom Milwaukee í 108-107 en þristur frá James 24 sekúndum fyrir leikslok kom Cleveland í 110-108 og liðið kláraði síðan leikinn á vítalínunni.

LeBron James var með 34 stig, 12 fráköst og 7 stoðsendingar í leiknum en Kyrie Irving bætti við 28 stigum, 5 fráköstum og 5 stoðsendingum. Channing Frye var síðan þriðji stigahæstur með 15 stig.

Jabari Parker skoraði 30 stig fyrir Milwaukee Bucks og Giannis Antetokounmpo var með 25 stig, 13 fráköst og 3 varin skot.



Golden State Warriors hélt Utah Jazz í 74 stigum og 36 prósent skotnýtingu í öruggum 104-74 sigri á heimavelli. Golden State hefur þar með unnið tvo síðustu leiki sína (á móti Portland og Utah) með 37,5 stigum að meðaltali í leik.

Stephen Curry skoraði 25 stig fyrir Golden State, Kevin Durant var með 22 stig, Klay Thompson skoraði 17 stig og Draymond Green var með 15 stig, 11 fráköst, 5 stolna bolta og 4 stoðsendingar. Joe Johnson var stighæstur hjá Utah með 14 stig.

Kemba Walker var með 28 stig og 10 stoðsendingar þegar Charlotte Hornets vann Los Angeles Lakers 117-113. Marco Belinelli skoraði 11 stig í fjórða leikhluta en Charlotte kom til baka eftir að hafa lent 19 stigum undir í leiknum.



Isaiah Thomas setti nýtt persónulegt met með því að skora 44 stig, 36 þeirra í seinni hálfleik, þegar Boston Celtics vann 112-109 sigur á í framlengdum leik í Memphis. Al Horford var með 17 stig og 14 fráköst en Boston vann upp 17 stiga forystu í seinni hálfleiknum. Marc Gasol og Troy Daniels skoruðu mest fyrir Memphis eða 24 stig hvor.

Nik Vucevic var með 26 stig og 12 fráköst og Evan Fournier bætti við 26 stigum þegar Orlando Magic vann Flórída-uppgjörið á móti Miami Heat, 136-130, eftir tvíframlengdan leik. Tyler Johnson setti persónulegt met með því að skora 32 stig fyrir Miami en Hassan Whiteside var síðan með 32 stig og 15 fráköst.

Miami Heat gat unnið leikinn bæði í venjulegum leiktíma og í fyrri framlengingunni en tapaði niður fimm stiga forskoti á lokamínútu venjulegs leiktíma og missti niður fjögurra stiga forystu á síðustu 40 sekúndum í fyrri framlengingunni.



Carmelo Anthony skoraði 35 stig þegar New York Knicks vann 118-111 sigur á Indiana Pacers. Anthony skoraði 26 stig í seinni hálfleik þegar New York vann upp fimmtán stiga forskot Indiana-liðsins.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Golden State Warriors - Utah Jazz    104-74    

Los Angeles Clippers - Denver Nuggets    119-102    

Houston Rockets - San Antonio Spurs    100-102    

Memphis Grizzlies - Boston Celtics    109-112 (97-97)    

Milwaukee Bucks - Cleveland Cavaliers    108-114 (100-100)    

Miami Heat - Orlando Magic    130-136 (109-109)    

New York Knicks - Indiana Pacers    118-111    

Toronto Raptors - Brooklyn Nets    116-104    

Charlotte Hornets - Los Angeles Lakers    117-113    

Philadelphia 76ers - New Orleans Pelicans    93-108



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×