Körfubolti

Körfuboltakvöld: Strákarnir hnakkrifust um Keflavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margir hafa klórað sér í hausnum yfir gengi Keflavíkur á fyrri hluta tímabilsins í Dominos-deild karla.

Keflavík hefur tapað fleiri leikjum (6) en liðið hefur unnið (5) og er sem stendur í áttunda sæti. Liðið myndi samkvæmt því rétt svo slefa inn í úrslitakeppnina.

Í lokaþætti ársins af Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport á föstudagskvöld tókust sérfræðingarnir hressilega á um stöðu Keflavíkur.

Kristinn Geir Friðriksson reiknaði ekki með miklu af Keflavík eftir áramót og spáir liðinu tíunda sætinu. Jón Halldór Eðvaldsson var ekki ánægður með það.

„Viltu ekki leggjast í fósturstellingu og sjúga á þér þumalinn? Hættu þessu kjaftæði,“ sagði hann.

Fannar Ólafsson blandaði sér í umræðuna sem var sem var afar fjörleg. Hana má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×