Þór og Skallagrímur ekki í vandræðum með fyrstu deildar liðin Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. janúar 2017 20:58 Tavelyn Tillman var stigahæst hjá Skallagrími. vísir/anton brink
Þór frá Þorlákshöfn átti ekki í neinum vandræðum með að valta yfir fyrstu deildar lið FSu, 104-68, þegar liðin mættust í átta liða úrslitum Maltbikars karla í körfubolta í kvöld. Þórsarar leyfðu minni spámönnum að spreyta sig auk þess sem aðstoðarþjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson spilaði fimmtán mínútur og skoraði fimm stig á fimmtán mínútum. Ragnar Örn Bragason skoraði 20 stig fyrir Þórsara í kvöld og var stigahæstur sinna manna en heimamenn fengu 51 stig af bekknum og skoruðu allir liðsmenn Þórs nema einn. Bandaríkjamaðurinn Terrence Motley var stigahæstur hjá FSu en hann skoraði fimmtán stig, tók átta fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Þórsarar fóru alla leið í bikarúrslitaleikinn í fyrra en þeir eru nú komnir aftur í Laugardalshöllina þar sem undanúrslitin og úrslitin fara fram þar sömu helgina. Auk Þorlákshafnarliðsins eru komin í undanúrslit Grindavík og KR. Í Maltbikar kvenna var Skallagrímur síðasta liðið til að tryggja sér farseðil í Laugardalshöllina en það pakkaði saman KR, 78, 42, í kvöld. KR leikur í næst efstu deild en Skallagrímur er í toppbaráttu Domino's-deildarinnar. Tavelyn Tillman var stigahæst Borgnesinga í kvöld með 24 stig en Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði 20 stig fyrir Skallagrím. Snæfell Haukar, Keflavík og Skallagrímur eru liðin sem verða í pottinum á morgun þegar dregið verður til undanúrslitanna.
Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Meistarar KR hársbreidd frá því að falla úr leik í bikarnum gegn Hetti Hetjuleg frammistaða 1. deildar liðsins dugði ekki á endanum gegn Íslands- og bikarmeisturum KR. 16. janúar 2017 20:27 Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Tryggvi og félagar eru áfram með fullt hús í Evrópubikarnum Abby með sigurkörfuna 0,8 sekúndum fyrir leikslok Áfall Njarðvíkur fyrir grannaslag kvöldsins Fyrsta Evróputap Stólanna í Síkinu Fjórði sigur Haukakvenna í röð KR - Valur 66-77 | Valur komst upp fyrir KR eftir sigur í rimmu liðanna Martin stoðsendingahæstur í Evrópusigri Tímabilið búið hjá Butler Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Bað um að fara frá Keflavík Risaleikir í undanúrslitum bikarsins Justin James aftur á Álftanesið Blóðugt tap gegn Börsungum Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Martin framlagshæstur í sigri Alba Berlin Elvar öflugur í mikilvægum sigri Segir ekkert til í því að Justin James sé á leið á Krókinn Uppgjörið: Njarðvík - ÍA 84-71| Langþráður sigur Njarðvíkur skilur ÍA eftir í slæmum málum Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa „Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá“ „Hættum að spila okkar leik“ Uppgjörið: Þór Þ. - KR 123-126 | Endurkoma, framlenging og dramatík í Þorlákshöfn „Var í raun bara verið að yfirspila okkur“ Bragi: Er að þroskast mikið sem leikmaður Uppgjör: Ármann - Valur 94-77 | Frábær sigur Ármanns á lánlausum Valsmönnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 116-98 | Keflvíkingar kafsigldir í Garðabæ Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Sjá meira
Meistarar KR hársbreidd frá því að falla úr leik í bikarnum gegn Hetti Hetjuleg frammistaða 1. deildar liðsins dugði ekki á endanum gegn Íslands- og bikarmeisturum KR. 16. janúar 2017 20:27